Rafpallbíllinn er svar Nissan við pallbílum frá Tesla og Rivian
17,65 milljarða dollara fjárfesting bílaframleiðandans í rafvæðingu felur í sér 3 nýjar hugmyndir að fullrafmögnuðum bílum
TOKYO – Nissan er að kynna fullrafmagnaðan pallbíl sem er hluti af næstu kynslóð framleiðslu þeirra. Bíllinn stingur ef til vill í stúf við torfæruframboð annarra framleiðanda, eins og pallbílarnir frá Ford og Tesla.
Surf-Out hugmyndabíllinn er flottur útivistarbíll með það sem lítur út eins og opið farþegarými til að auðvelda aðgang að pallbílnum.
Afturhlerinn er eins konar stafrænn skjár, upplýstur og getur sýnt allskyns tjákn (emojis) eins og sjá má á mynd hér fyrir neðan. Hönnun bílsins „á að vera skemmtileg,“ segir framleiðandinn.
Einnig er hægt að draga flottan tjaldhimin yfir farmrýmið til næðis og verndar.


Surf-Out er ein af þremur nýjum alrafmagnshugmyndum sem Nissan sýndi á mánudaginn þegar fyrirtækið tilkynnti fjárfestingu upp á 2 billjónir jena (17,65 milljarðar dollara) á næstu fimm árum til að auka framboð rafknúinna ökutækja með 23 nýjum útgáfum um allan heim fyrir lok áratugarins.
Nýjar þynnri og léttari rafhlöður
Allir hugmyndabílarnir þrír gera ráð fyrir að nota þynnri, léttari, kraftmeiri „solid state“ rafhlöður sem Nissan lofar að komi á markað fyrir reikningsárið sem lýkur 31. mars 2029.
„Rafhlöður verða lykillinn að umskiptum,“ sagði forstjóri Nissan, Makoto Uchida, þegar hann afhjúpaði hugmyndabílana á kynningarfundi á netinu.
„Með rafhlöðum sem eru minni og þynnri getum við boðið upp á sveigjanlegt skipulag og öflugri afköst, sem nýtist vel í flokki stærri bíla, eins og pallbíla,“ sagði hann.

Hugmynd Nissan kemur þegar keppinautar eru á fleygiferð inn í rafbílahlutann, sérstaklega á bandaríska markaðnum þar sem pallbílar eru áfram í efsta sæti, með um 18 prósent markaðshlutdeild á bílamarkaði.

Í Evrópu hefur eftirspurn minnkað og sala því dregist saman. Árið 2020 nam salan aðeins 6,8 prósentum af LCV-hlutanum með sölu á 116.280, samanborið við 7,9 prósent árið 2017, samkvæmt upplýsingum frá JATO Dynamics.
Nissan hefur lengi átt í erfiðleikum með að ná til stærri hluta kaupenda pallbíla.
Titan pallbíllinn í fullri stærð situr neðst eða neðarlega á lista seldra pallbíla, en Frontier sveimar í miðjunni í flokki meðalstórra pallbíla.
Ford, pallbílakóngurinn með mest seldu F-línuna sína, er að þróa rafdrifna útgáfu sem kallast F-150 Lightning. Chevrolet ætlar sér að koma með rafdrifinn Silverado árið 2023, Tesla er með Cybertruck og sprotafyrirtækið Rivian er í kapphlaupi með R1T. Það er líka GMC Hummer EV.

„Fjölbreytni aflgjafa ökutækisins og lágt og flatt farmrými er ætlað að auðvelda þér að fara hvert sem þú vilt og auka upplifunina þegar komið er á áfangastað,“ sagði Nissan.
En það virðist sem Nissan sé að bíða eftir byltingunni fyrir „solid state“ rafhlöðuna áður en þeir setja hana í pallbílana, en það mun verða undir lok áratugarins, eða 2028.


Stjórnendur sögðu að nýju rafhlöðurnar muni ekki aðeins gefa aukið svigrúm til skapandi hönnunar heldur einnig draga úr kostnaði við rafbíla, að hluta til vegna þess að búist er við að „solid-state“ rafhlöður séu öruggari en litíumjóna rafhlöður í dag og þurfa ekki eins mikla kælingu og burðarvörn.



Nýr og léttari grunnur
Nissan segir að grunnur næstu kynslóðar rafbíla verði ofurléttur, noti mótora að framan og aftan, með mjög lágan þyngdarpunkt og noti háþróuð kerfi e-4ORCE og ProPilot, sem er sjálfvirkt aksturskerfi fyrirtækisins.
Í lok kynningar sagði Nissan að það vilji blöndu rafvæðingar á heimsvísu sem nemur 50 prósentum fyrir Nissan og Infiniti vörumerkin fyrir reikningsárið sem lýkur 31. mars 2031. Í boði verða 23 ný rafknúin farartæki, þar á meðal 15 nýir rafbílar.
(Automotive News Europe – myndir Nissan)
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein