Næsta kynslóð Mini Countryman á mynd og er nú „smíðaður í Þýskalandi“
Mini er að undirbúa sig til að afhjúpa næstu kynslóð Mini Countryman, sem kemur með rafdrifinni aflrás.
Nýi Countryman verður einnig fyrsti Mini-bíllinn sem smíðaður er að öllu leyti í Þýskalandi, þar sem hann verður smíðaður í verksmiðju BMW í Leipzig.
„Við erum ánægð með að geta afhent viðskiptavinum okkar fyrsta Mini „Made in Germany“ á CO2-hlutlausan hátt vegna sjálfbærrar orkuveitu verksmiðjunnar.
Þannig sýnir hinn nýi alrafmagnaði Mini Countryman hvað vörumerkið stendur fyrir: rafknúna tilfinningu „smábíls“ og sterka áherslu á lágmarks umhverfisfótspor,“ segir Stefanie Wurst, yfirmaður Mini.
Framleiðsla á nýja Mini Countryman mun hefjast í lok ársins, svo við ættum að sjá hann frumsýndan fljótlega.
(vefur TorqueReport)
Umræður um þessa grein