- Bílabúð Benna frumsýnir Musso Grand pallbílinn laugardaginn 25. janúar
Musso er nafn sem íslenskt jeppaáhugafólk þekkir vel en hann var einn mest seldi jeppinn á íslandi í kringum aldamótin. Á laugardaginn frumsýnir Bílabúð Benna nýja útgáfu þessa þekkta bíls sem ber nú nafnið, Musso Grand og er í þetta sinn stór og stæðilegur pallbíll. Musso er framleiddur af KGM sem er nýtt nafn á hinum gamalgrónna framleiðanda SsangYong en hann var fyrir skemmstu keyptur af Kóreska risafyrirtækinu KG Group.
Musso var löngum þekktur fyrir að bjóða uppá mikið fyrir peninginn og er ný útgáfa engin eftirbátur þeirrar eldri þegar kemur að því. Kostar hann frá 7.590.000 kr. m. vsk. og er í þeirri útfærslu búinn öflugri dísel vél sem skilar 202 hö og allt að 441 Nm togi og er með læsanlegum millikassa og háu og lágu drifi.
Musso Grand kemur með fimm punkta gormafjöðrun að aftan sem eykur stöðuleika og bætir akstureiginleika á ójöfnum vegum. Mögulegt er að fá blaðfjöðrun í staðinn, fyrir þá sem vilja meiri burðargetu, en hámarksburðargeta er 1.025 kg og dráttargeta er allt að 3.500 kg. Tvær pallalengdir eru boði, 130 cm og 161 cm sem er þá nokkuð lengri en aðrir Pallbílar í þessum flokki
Mikið er lagt uppúr innanrými sé sem þægilegast í því er 12.3“ stafrænt mælaborð og aðgerðarstýri sem býður ökumanni upp á fjölbreytta möguleika og notendavænn 12.3“ stafrænn margmiðlunarskjár með íslensku leiðsögukerfi, Apple CarPlay og android Auto svo eitthvað sé nefnt.
Frumsýningin fer fram hjá Bílabúð Benna á Krókhálsi 9 frá 12-16 og verður boðið upp á að sjá 33“ og 35“ breyttan Musso Grand á meðan sýningu stendur.
(fréttatilkynning frá Bílabúð Benna)
Umræður um þessa grein