Mögnuðustu húsbílar sögunnar
Núna þegar spakir menn telja sig finna vorilm í lofti fara margir að hugsa til komandi sumars og þeirra ferðalaga sem framundan eru. Einhverjir vilja vera flottir á því og ferðast um á húsbílum, á meðan aðrir láta sér nægja hótelgistingu eða jafnvel einfalda tjaldútilegu.
Þeir sem aðhyllast húsbílamenninguna hafa eflaust gaman af að kynnast þeim húsbílum sem löngum eru taldir magnaðastir þeirra allra, en það eru ferðabílar ítalska landkönnuðarins Attilio Gatti sem fór vítt og breitt um Afríku á fyrri hluta síðustu aldar.
Áður en Gatti hélt í viðamikinn leiðangur um Kongó á árunum 1938 til 1940 lét hann International Harvester sérsmíða fyrir sig tvo gríðarstóra níu tonna húsbíla með öllum þægindum, m.a. setustofu, svefnherbergjum, eldhúsi og baðherbergi, en þessir vagnar þóttu standa sig með prýði í svörtustu Afríku.
Enn í dag þykir ekki sjálfsagt mál að ferðast um þennan hluta veraldar, hvað þá á árunum fyrir seinna stríð þegar vegakerfi heimsálfunnar var mun frumstæðara en það er í dag.
Smíðaðar voru sérstakar ferjur til að koma þessum 13 metra löngu drekum yfir viðsjárverð fljót og síðan tóku vegir og vegleysur við.
Með í för voru auk þess flutningabílar með vistir og eldsneyti. Þar sem leiðangursmenn slógu upp búðum var tjaldað fyrir þjónustuliðið, en það hafði m.a. þann starfa að setja upp varnargirðingu svo halda mætti ljónum og öðrum vágestum frá mannfólkinu á næturna. Til að auka öryggið enn frekar var rafmagni hleypt á girðinguna, en það var framleitt með öflugri rafstöð sem sá einnig um að lýsa upp búðirnar og knýja loftkælingar.
Sjá má stutta heimildarmynd um þennan einstaka leiðangur á Youtube
Attilio Gatti var heimsfrægur ítalskur landkönnuður sem fór í fjölmarga leiðangra um heim allan fyrir og eftir stríð, en frægastur er hann fyrir Kongó-leiðangurinn mikla á árunum 1938 til 1940.
International Harvester notfærði sér leiðangur Gattis til hins ítrasta í auglýsingum, enda þóttu Nallarnir standa sig með mikilli prýði í Kongóleiðangrinum.
Það væsti ekki um leiðangursmenn í húsbílunum tveimur, en þessa 13 metra löngu dreka skorti engin þægindi.
Í báðum húsbílunum var fullkomið baðherbergi, enda voru þeir einskonar hótel á hjólum.
Umræður um þessa grein