BL við Sævarhöfða blæs á laugardag til samsýningar á nýjum bílum frá MINI og MG sem nýlega eru komnir til landsins og í sýningarsalinn við Sævarhöfða.
Annars vegar er um að ræða frumsýningu á MINI Cooper og MINI Aceman auk Countryman, sem kynntur var fyrr á árinu, og hins vegar frumsýningu á MG3 og MG HS, en allir eiga fólksbílarnir það sameiginlegt að vera að hluta eða öllu leyti rafdrifnir, snarpir og litríkir. Frumsýningin við Sævarhöfða á laugardag stendur frá kl. 12 til 16.
100% rafmagn MINI
MINI Cooper E og Aceman E eru báðir 100% rafdrifnir og hafa á bilinu 285-300 km drægni samkvæmt WLTP og er hröðun þeirra úr kyrrstöðu í 100 km/klst 7,3 til 7,9 sekúndur eftir gerð.
Countryman E, sem einnig er hægt að fá fjórhjóladrifinn, hefur á bilinu 399 til allt að 462 km drægni eftir því hvor gerðin er valin og er hröðunin frá 5,6 til 8,6 sekúndna eftir gerð.
Allar gerðir MINI eru mjög ríkulega búnar öryggis- og þæginda- og afþreyingarkerfum eins og hægt er að kynna sér nánar í verðlista á heimasíðunni mini.is.
Tvinn- eða tengiltvinnrás MG
MG bílarnir tveir sem BL frumsýnir nk. laugardag eru rafmagnaðir að hluta. Þannig er MG3 Hybrid, sem aldrei þarf að stinga í samband við hleðslustöð, búinn 1,5 lítra fjögurra strokka bensínvél og 100kW rafmótor, sem saman skila 191 hestafli og bílnum á 8 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst og eldsneytiseyðslan er aðeins 4,4 l/100 km að meðaltali.
Tvær gerðir eru í boði; Standard og LUX og miðað við verð, sem er frá aðeins tæpum fjórum milljónum króna, er MG3 vel búinn öryggis- og þægindakerfum eins og kemur fram á vef MG á bl.is.
MG HS PHEV með 109 km drægni á rafmagni
Hinn rúmgóði tengiltvinnknúni MG HS PHEV er búinn 1,5 l bensínvél og rafmótor sem saman eru 273 hestöfl. Rafhlaða MG HS PHEV skilar bílnum allt að 109 km eingöngu á rafmagni; mun lengra en margir helstu keppinautarnir á markaðnum.
Hér er um að ræða rúmgóðan og fjölskylduvænan sportjeppling sem eyðir einungis að meðaltali 0,54 lítrum á hverja 100 ekna kílómetra og er á afar viðráðanlegu verði eða frá tæpum 6,7 mkr.
Eins og aðrar gerðir MG er tengiltvinnknúinn MG HS PHEV vel búinn öryggis- og þægindakerfum eins og fram kemur á vef MG.
Fréttatilkynning frá BL.
Umræður um þessa grein