Mikið um frumsýningar á nýjum bílum á bílasýningunni í Los Angeles sem byrjar eftir viku
Það verður margt að sjá á bílasýningunni í Los Angeles, Los Angeles Auto Show, sem byrjar eftir slétta viku, föstudaginn 30. nóvember. Við höfum áður sagt frá frumsýningu á nýjum Mazda-3, en það verða fleiri frumsýningar á nýjum bílum og hugmyndabílar verða einnig margir til staðar.
Til að gefa smá innsýn í hvers er að vænta hvað varðar frumsýningu á nýjum bílumá þessari sýningu fylgja hér nokkrar myndir.
Mazda-3
Eins og við höfum fjallað um áður þá tilkynnti Mazda Motor Corporation að alveg-nýr Mazda3 muni verða heimsfrumsýndur á Los Angeles Auto Show, sem verður opin almenningi 30. nóvember til 9. desember / sérdagar fyrir blaðamenn eru 28-29 nóv.
Hin nýja Mazda3 er sögð verða með meiri þroska hvað varðar túlkun á Kodo hönnun sem felur í sér kjarna japanskrar fagurfræði. Á sama tíma hafa grundvallaratriði varðandi notkun og aksturseiginleika verið hækkuð á nýtt stig. Næsta kynslóð „Skyactiv“-tækni og útlits gerir fólki kleift að nýta sér náttúrulegt jafnvæði og nýjustu Skyactiv-vélarnar bjóða upp á skilvirka stjórnun á hraða ökutækis við allar akstursaðstæður. Þessi nýja Mazda3 markar upphaf nýrrar kynslóðar Mazda-bíla sem mun skila nýjum hæðum hvað varðar akstursánægju viðskiptavina um allan heim, að sögn þeirra hjá Mazda.
2020 Kia Soul Crossover
Einn þeirra nýju bíla sem birtist á komandi sýningu á Los Angeles Auto Show mun óneitanlega vekja eftirtekt. Hinn sérstæði Soul Crossover sem er nýr frá grunni í 2020-árgerð og mun koma á markað með mikla fjölhæfni fyrir alla. Djörf hönnun, mikil gagnsemi og skemmtilegir aksturseiginleikar, allt þetta verður undirstrikað með mismunandi drifrásum, þ.mt túrbínum og „bensínlausum“ rafmagnsvalkostum. Ætlað er að hinn nýi Soul Crossover komi í sölu á næsta ári
Lincoln Aviator
Alveg nýr Lincoln Aviator verður frumsýndur á sýningunni í Los Angeles.
Hann mun bjóða upp á einstök hljóðmerki sem upplýsa ökumenn um allt frá opnu eldsneytishólfi að ótengdum öryggisbelti, eru nú „symfónísk“ í nýjum Lincoln Aviator. Þrjú stig af upplýsandi hljómsveitum – minni háttar, mjúk viðvörun og alvöru viðvörunarhljómar – munu veita mismunandi hljóðmerki fyrir um 25 aðgerðir í ökutækinu.
„Aviator táknar hina sönnu sýn Lincoln-vörumerkisins“, sagði David Woodhouse, stjórnandi hönnunar hjá Lincoln Motor Company. „Með svona flottu útliti varð að hafa hljóð sem passaði við fegurð þessa ökutækis“.
Lincoln Aviator, sem er með þremur sætaröðum kynnir leiðandi frammistöðu og nýjungar í tækni. Hönnunarliðið tryggir að í Lincoln að jeppaeiginleikinn sé enn til staðar.
„Þetta er frekar sérstakt hjá okkur – kynna tónlist í upplýsingamiðlun“, sagði Jennifer Prescott, sem hafði umsjón með verkinu. „En við erum alltaf að hugsa um lúxus, og þetta var leið til að taka Lincoln á enn hærra stig“. Eftir að hafa fundað um einstaka hljóðvalkosti með liðinu sínu sendi Prescott tölvupóst til tónlistarmanna í Sinfóníuhljómsveit Detroit. „Ég hélt sannarlega að þeir myndu hugsa að ég væri brjáluð“, sagði hún og hló. „En við vildum ganga úr skugga um að hvert smáatriði í þessu ökutæki væri fullkomið“.
Lexus LX Inspiration Series
Í nóvember mun Lexus kynna næstu gerð í „Inspiration Series“. LX er með svartt „Onyx“útlit að utan sem er á 21 tommu svörtum álfelgum og svört hjólnöf. Þetta nýja útlit er síðan undirstrikað með svörtu grilli og dökku krómi allt um kring.
Útlit LX er einnig undirstrikað með svartri umgjörð um aðalljós, þokuljós og glugga ásamt reyklituðum ljóskerum. Að aftan á þessu flaggskip jeppa frá Lexus heldur áfram þetta svarta þema með svörtu krómi á afturljósum, bílnúmer og afturhurð.
Einstök klæðnin sem þeir hjá Lexus kalla „Moonlight White Semi-Aniline“-leður með svörtu innleggi er viðbót við svart ytra byrðið. Til að hjálpa til við að ljúka hugsun varðandi hönnun á lúxus jeppa, veita teppi, motta í farmrými einstakt yfirbragð á innréttinguna.
Toyota Prius
Toyota hefur tilkynnt að nýr Prius verði frumsýndur á sýningunni í Los Angeles, en við verðum að bíða í viku til að vita meira.
MINI Clubman Starlight Edition
Clubman S birtist í Los Angeles í nýrri „Starlight“-gerð og fer beint í sölu. Bílarnir eru með „Starlight Blue Metallic“ lakki og útlit sem þeir kalla „Melting Silver“ er á rönd á húddi, þaki og speglum. Hann er með silfurlitum 17 tommu felgum. Farþegarýmið er með farangurskerru, mottu í farmrými og „Click and Drive“ haldara fyrir sjallsímann.
MINI Countryman Yin Yang Edition
Yin Yang-gerðin er byggð á MINI Cooper S Countryman og verður í boði í annaðhvort „Midnight Black“ eða „Light White“ með andstæðan lit á þaki og sérsniðna hönnun á rönd sem nær yfir allan bílinn. Yin Yang Edition kemur með „píanó-svörtu“ grilli, framljósum og afturljósum og hurðarhandföngum.
MINI John Cooper Works Knights Edition
Knights-gerðin er byggð á MINI John Cooper Works Hardtop með fjölda af svörtum og silfurlitum íhlutum frá verksmiðju íhlutum og aukabúnaði. Hann er eingöngu í boði með „Midnight Black“ lakki á ytra byrði, „Melting Silver“ á þaki og speglum, auk þess að vera með sérsniðna silfurlita rönd á húddi og silfur og rauðar rendur á hliðum. Að utan einnig með píanó-svörtum ytri klæðningum, píanó-svörtum hurðarhúnum og eldsneytisloki. Knights Edition kemur einnig með John Cooper Works útblásturskerfi og krómuðum útblástursstútum.
Subaru Crosstrek Hybrid
Subaru er að kynna 2019 „Crosstrek Hybrid“. Það hefur verið beðið eftir þessum jeppa með eftirvæntingu sem verður að sjálfsöögðu með aldrifi og býður upp á raunverulegt akstursgetu sem tengitvinnbíll. Þessi Subaru á að koma í sölu vestra í lok þessa árs, 2019 Crosstrek Hybrid mun einnig vera með einstakt yfirbragð bæði að utan og innan og með nýja tækni. Crosstrek er orðinn þriðji söluhæsti bíll Subaru í Ameríku frá upphafinu fyrir sex árum síðan.
2020 Toyota Corolla Hybrid
Í kjölfarið á frumsýningu á nýjum Toyota Corrolla fyrir nokkrum dögum verður bíllinn í fyrsta skipti í boði í Bandaríkjunum í „hybrid“ útgáfu sem tengir saman rafmagn og bensín, en við verðum að bíða frumsýningarinnar til að fræðast nánar um þessa nýju gerð.
BMW X7 Sport Activity
Nýjast og stærsta gerðin í BMW X-línunni notar framúrskarandi valkosti drifrásar og tækni undirvagns, auk þess að bjóða upp á mikið af plássi í öllum þremur sætaröðum og háþróuðum tækjabúnaði til þess að skila óviðjafnanlegu reynslu fyrir ökumann og farþega. Hönnun á nýjum undirvagnsi veitir besta jafnvægi á yfirburða veggripi á grófu landslagi og framúrskarandi breytilega svörun og akstursþægindi á bundnu slitlagi. BMW X7 kemur með sem staðalbúnað tveggja öxla loftfjöðrun og rafeindastýrða höggdeyfa til að skerpa á aksturseiginleikunum, en á samtímis aukin akstursþægindi. BMW X7 mun hefja framleiðslu á BMW í Spartanburg, SC-verksmiðjunni í Bandaríkjunum síðar á þessu ári til undirbúnings fyrir markaðssetningu á bílnum í mars 2019.
BMW X5 Sport Activity
Nýjasti BMW X5 heldur sig nokkuð við áður þekkt útlit, en samt er hér að finna hreinar línur sem vekja athygli á glæsileika og afli. Formaður framendinn undirstrikar þetta enn frekar – hér er á ferðinni alveg nýr BMW X5 árgerð 2019, sem við gerum betur grein fyrir síðar.
?
Umræður um þessa grein