Mercedes sýnir innréttingu EQE sportjeppans fyrir frumsýninguna 16. október
Mercedes-Benz hefur birt myndir af fullrafmagnaða sportjeppanum, sem verður með „hyperanalogue“ þema með mælaborði úr gleri í fullri breidd.
Innréttingin í komandi rafknúnum Mercedes-Benz EQE jepplingi verður með „hyperanalogue“ þema (eða „ofur hliðstætt útlit“), með stafrænum framsetningum á kringlóttum mælum sem eru settir inn á glerskjá sem spannar breidd stjórnklefans.
Mercedes sýndi innréttingarmyndir fyrir frumsýningu EQE sportjeppans sem er áætluð þann 16. október.
Stóri sportjeppinn verður byggður á sama EVA2 grunni og framboð stærri rafbíla vörumerkisins, EQS fólksbíllinn og jepplingurinn, og EQE fólksbíllinn, sem kom á markað á þessu ári.
Líkt og stærri sjö sæta EQS sportjeppinn verður fimm sæta EQE sportjeppinn smíðaður í verksmiðju Mercedes í Alabama og fluttur til Evrópu.
Á bak við MBUX Hyperscreen í fullri breidd eru aðskildir stafrænir skjáir sem virðast renna óaðfinnanlega saman, þar á meðal mælaborðið, miðlægi snertiskjárinn og annar fyrir farþega í framsæti.
„Fljótandi“ miðjustokkur eða stjórnborð á milli framsætanna er með „opna“ geymslu.
Mercedes gaf ekki út neinar nánari tæknilýsingar fyrir sportjeppaútgáfu af EQE, sem verður fyrst aðeins fáanlegur með afturhjóladrifi, en síðar verða 4Matic útgáfur með rafmótor sem knýr framhjólin. EQE fólksbíllinn er með 90 kílóvattstunda rafhlöðu og drægni allt að 640 km, allt eftir útfærslu.
Sala á fólksbílaútgáfunni hófst í Evrópu á öðrum ársfjórðungi og var grunnverðið um 70.000 evrur.
Forráðamenn Mercedes sögðu fyrr á þessu ári að EQE væri nú þegar með svipaða framlegð og E Class bílarnir sem byggja á brunavélum.
Umræður um þessa grein