- Flaggskip alrafmagnaðra bíla Volkswagen hefur verið opinberað og sást einnig í stationgerð
Við höfum áður fjallað um nýja „stóra“ rafbílinn frá VW, sem verður „flaggskipið“ í ID-línunni, en núna hefur meira verið gefið upp um bílinn og fyrstu alvöru myndirnar birtar af bílnum. Bílvefir carwow og Auto Express hafa verið að fjalla nánar um þennan væntanlega bíl frá VW
Nýr Volkswagen ID.7 hefur verið opinberaður. Þetta er fyrsti rafmagnsbíllinn frá VW í „saloon“ gerð eða sem fullstór fólksbíll og hann verður fáanlegur með allt að 700 km drægni.
Volkswagen hefur aukið úrval rafbíla með nýjum ID.7. Þessi rafknúni ID-bíll er efst á rafknúnu ID-línunni frá Volkswagen og mun keppa við BMW i4 og Tesla Model 3.
Samkvæmt vefsíðu Volkswagen mun ID7 verða fáanlegur seinni hluta ársins eða í ársbyrjun 2024.
Við sáum ID.7 fyrst í hugmyndaformi sem ID. Vizzion árið 2018, en þá reyndi VW að gefa framleiðslubílnum hámarksdrægi upp á 526 km með endurbótum á rafhlöðutækni á milli ára, núna fullyrðir VW að ID.7 muni koma með talsvert glæsilegri drægni allt að 700 km.
Helstu punktar:
- Nýr VW ID.7 opinberaður
- Nýr rafknúinn salonbíll
- „Fastback“ hönnun
- Hagnýt stationgerð líka á leiðinni
- Allt að 700 km drægni
- 286 hö og afturhjóladrifinn
- Innréttingin inniheldur endurunnið efni
- Nýtt 15,0 tommu upplýsinga- og afþreyingarkerfi
- Til sölu síðar á þessu ári
Þetta er nýr Volkswagen ID.7, rafknúinn stór fólksbíll (saloon) sem er valkostur við Tesla Model 3 og Polestar 2. Þetta er fyrsti stóri rafbíllinn sem ber ID-merki frá VW og honum fylgir nýr rafmótor.
Farþegarýmið er einnig með nóg af endurunnum efnum og það er líka nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfi.
Volkswagen ID.7 hönnun
Hönnun Volkswagen ID.7 hefur verið sýnd nokkrum sinnum áður, en hún hefur loksins sleppt felulitunum. Bíllinn er mun sportlegri í útliti en ID.4 aðallega vegna hallandi þaklínu.
Hann er með oddhvasst nef með nokkrum sléttum LED framljósum og LED rönd í fullri breidd yfir vélarhlífina.
Það er ekkert stórt lokað grill hérna, bara smá loftinntök í neðri stuðaranum til að kæla rafhlöðuna.
Horft á neðri hlutann þá skilur þessi nýi bíll sig frá öðrum rafbílum frá VW. Þetta er ekki kassalaga „jepplingur“ eins og ID.4, þetta er flottur stór fólksbíll með sportlegri hallandi þaklínu. Einnig eru svartir sílsar, auk sömu innbyggðu hurðarhúnanna og á Volkswagen ID.5.
Að aftan virðist Volkswagen hafa haldið hlutunum einföldum. Það er breið ljósastika þvert yfir afturhlerann með snyrtilegum LED ljósum og það eru loftop í neðri hluta stuðarans.
Nýr Volkswagen ID.7 station sást í prófunum
Auk nýja Volkswagen ID.7 fólksbílsins, hefur hagnýt stationútgáfa einnig verið í prófunum.
Allt frá framhurðum og fram á við verður hann eins og stóri fólksbíllinn, hins vegar er afturendinn öðru vísi.
Það er ekki að marka lögun afturljósanna á þessari frumgerð, þau eru hulin í bili. Reikna má með svipaðri ljósastiku og á fólksbílnum.
Hann er miklu kassalagari en venjulegur bíll, þó að hann hafi samt nokkuð sportlegt útlit fyrir stationbíl þegar borið er saman við eitthvað eins og Volvo V60, segir vefur carwow.
Það eru ekki margir möguleikar á markaðnum ef þú ert að leita að nýjum rafknúnum stationbíl, þar sem MG 5 og Porsche Taycan Cross Turismo eru einu raunverulegu keppinautarnir þar til nýr BMW i5 Touring kemur.
Volkswagen ID.7 innrétting
Volkswagen virðist hafa tekið Tesla sem „fyrirmynd“ með risastóra 15,0 tommu skjáinn sem drottnar yfir mælaborðinu í nýja ID.7.
Rétt eins og í Tesla Model 3 stjórnar þú öllum helstu aðgerðum, svo sem loftslagsstýringu í gegnum þennan skjá. Það eru nokkrir snertinæmir rennitakkar fyrir neðan til að stilla hitastig og hljóstyrk í hljómtækjum og VW hefur hlustað á viðskiptavini sína og baklýst þessar stýringar svo þú getir séð þær á nóttunni.
Endurunnin efni
Volkswagen hefur einnig staðfest að innréttingin á ID.7 verði gerð úr nokkrum endurunnum efnum, rétt eins og í Volkswagen ID.Buzz. Þetta felur í sér áklæði úr sjávarplasti og endurunnum flöskum, svo og er endurunnið plast í einangruninni.
Sætin eru einnig stillanleg á 14 vegu auk þess að vera hituð og kæld. Það eru meira að segja hita- og rakaskynjarar í sætunum sem geta kveikt á upphitun eða kælingu eftir þörfum.
Annar flottur kostur er valfrjálsa panorama glerþakið. Það er gert úr „snjöllu“ gleri sem getur orðið ógegnsætt með því að ýta á hnapp, svipað og í Porsche Taycan, sem þýðir að það er engin þörf á fyrirferðarmikilli sólargardínu. Það er jafnvel hægt að stjórna þessu með raddskipunum.
Volkswagen ID.7 drægni og afköst
Nýr Volkswagen ID.7 notar nýjan rafmótor á afturhjólunum. Hann framleiðir 286 hö, en það er engin opinber frammistöðutölfræði ennþá til staðar. Fjórhjóladrifin GTX-gerð gæti komið síðar líka, en það hefur ekki verið staðfest.
Það sem hefur þó staðfest eru rafhlöðustærðir. Frá byrjun verður ID.7 boðinn með 77kWh í Pro útgáfunni.
Þetta býður upp á allt að 615 km drægni. Síðar verður Pro S útgáfa með stærri 86kWh rafhlöðu, sem býður upp á allt að 700 km á hleðslu.
Búast má við að nýr Volkswagen ID.7 komi í sölu í Evrópu fljótlega eftir endanlega frumsýningu. Breskir ökumenn munu líklega þurfa að bíða aðeins lengur með að setja nöfn sín á lista fyrir einn – hugsanlega undir lok árs 2023. Stationgerðin verður að öllum líkindum frumsýnd snemma árs 2024.
(fréttir á vef VW, carwow og Auto Express)
Umræður um þessa grein