Markaðshlutdeild Hyundai í Evrópu sló öll met 2022
Hyundai Motor seldi nærri 519 þúsund bifreiðar (518.566) á síðasta ári í Evrópu, 0,5% fleiri en 2021.
Hlutdeild fyrirtækisins á markaðnum nam 4,6 prósentum og hefur aldrei verið meiri en nú, sér í lagi á Spáni, Ítalíu, Frakklandi og Bretlandi.
Árangurinn má ekki síst rekja til mikillar sölu á losunarlausum bílum Hyundai sem jókst um 19% á Evrópumarkaði.
Mikil eftirspurn eftir rafbílum
Þrátt fyrir að síðasta ár hafi einkennst af ákveðinni óvissu á bílaiðnaði hélt Hyundai Motor áfram að bæta stöðu sína um alla Evrópu og sigrast á flestum meginhindrunum með framúrskarandi vinnu söludeilda fyrirtækisins um alla Evrópu.
Á heimsvísu seldi Hyundai 3,94 milljónir bíla sem var aukning um 1,4% frá 2021 og var salan, eins og í Evrópu, að mestu drifin áfram af eftirspurn eftir rafbílum, þar sem rafbílar Hyundai eru þeir þriðju mest seldu í álfunni.
Hyundai þriðji vinsælastur á Íslandi
Eins og annars staðar í Evrópu var mikil eftirspurn eftir Hyundai hér á landi á liðnu ári og voru yfir 1.400 bílar nýskráðir árinu, rúmlega 24% fleiri en 2021.
Var Hyundai þriðji mest seldi bíllinn hér á landi 2022 með 8,5% markaðshlutdeild og nam sala merkisins tæpum þriðjungi heildarsölu BL á árinu þar sem Tucson, IONIQ 5 og I20 voru vinsælastir.
Alls seldi Hyundai á Íslandi 353 rafbíla á síðasta ári, 111 fleiri en 2021 þrátt fyrir miklar tafir á afhendingum, en fyrir árslok voru um 400 rafbílar forpantaðir og verða þeir afhentir á næstu mánuðum.
Væntanlegir 2023
Á þessu ári mun Hyundai Motor kynna nokkrar nýjar útgáfur nýrra bíla, þar á meðal alveg nýja útgáfu Hyundai Kona Electric, ICE, HEV og N Line til að mæta mismundandi þörfum viðskiptavina sinna sem búa við fjölbreyttar aðtæður og misþróaða inniviði, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli.
Að auki er gert ráð fyrir að sportútgáfan IONIQ 5 N komi á markað á árinu og verður rafbíllinn jafnframt sá fyrsti í N-deild Hyundai. Á Íslandi verður m.a. IONIQ 6 kynntur í byrjun sumars, þar á meðal með fjórhjóladrifi.
(fréttatilkynning frá BL)
Umræður um þessa grein