Ljúf, kraftmikil og falleg
Toyota Corolla er án efa einn af gullmolum bílasögunnar. Hann er mest seldi bíll í heimi ár eftir ár og nú hafa 12 milljónir manna fest kaup á Hybrid útgáfu af bíl af Toyota gerð.
Það er ekki að undra að fólk sé hrifið af þessum bíl því hann er bæði öruggur, með lága bilanatíðni og státar af háu endursöluverði. Við hjá Bílabloggi fengum að prófa Toyota Corolla Style árgerð 2020 með 2.0 lítra Hybrid vélinni sem gefur 180 hestöfl. Áður höfðum við prófað Style útgáfuna með 1.8 lítra vélinni sem gefur 122 hestöfl. Um hana má lesa hér. Hybrid þýðir að aflið kemur frá brunamótor og rafmótor sem vinna saman.
Kraftmikil og silkimjúk vél
Nýja 2.0 lítra Hybrid vél Toyota er kölluð Hybrid Dynamic Force. Vélin var hönnuð fyrir Corolla bílinn. Þessi vél markar tímamót hjá Toyota því svörunin sem vélin gefur þegar maður gefur þessum bíl inn er mögnuð.
Silkimjúk hröðunin togar bílinn áreynslulaust áfram, hljóðlega og mjúkt.
Steinliggur
Þessi nýja Corolla er einfaldlega betri, flottari og með einstakan karakter. Aksturseiginleikarnir eru frábærir – og mun betri en í fyrri gerðum þessa mest selda bíls í heimi. Nýja Corollan er með lágum þyngdarpunkti þannig að hún steinliggur, eins og sleggja á veginum.
Fjöðrun bílsins hefur verið endurbætt og er nú fjölliða að aftan sem þýðir að bíllinn liggur betur í beygjum og nær hornum vel.
Það sem færir þenna bíl upp á stjörnuhimininn er stýrið – létt og meðfærilegt með allri mýktinni gerir það aksturinn geggjaðan. Corolla er með þremur akstursstillingum, sport, normal og eco.
Toyota hefur alveg fengið að heyra það frá bílagagnrýnendum að bílar þeirra séu aðeins öruggir, endingargóðir og hafi hátt endursöluverð en það vanti upp á akstursánægjuna. Varðandi nýju Corolluna er hægt að jarða þá mýtu.
Falleg og sportleg hönnun
Hönnuðir bílafyrirtækja nútímans leitast við að hanna bíla með sem minnstri loftmótstöðu og þannig að þeir komist sem best frá mengunarlöggjöfum landa. Hönnuðir Corolla hafa ekki einatt hannað þannig bíl heldur fallegan hlaðbak sem er bæði sportlegur og hagkvæmur. Ekki eru langbakurinn og stallbakurinn síðri í útliti.
Flott innrétting
Allt efnisval er til fyrirmyndar í nýjum Corolla. Mælaborð og klæðningar eru úr fallegum mjúkum efnum og sæti eru sérlega vel hönnuð og þægileg. Style útgáfan er með rafstýrðum mjókbaksstuðningi sem er einstaklega þægilegur fídus. Mjög vel fer um mann í framsætum bílsins en fyrir stóra og stæðilega menn mætti ef til vill vera örlítið meira fótapláss afturí. Einnig er farangursrýmið frekar lítið, allavega minna en í VW Golf og Opel Astra – sem eru í sama stærðarflokki.?
Ríkulegur staðalbúnaður
Toyota Corolla kemur í fjórum útgáfum. Live, Active, Style og Luxury. Grunnútgáfan er mjög vel búin og með nánast öllu sem dýrari gerðirnar hafa varðandi öryggi og tækni.
Til að mynda er staðalbúnaður eftirfarandi: sjálfvirkt háaljósakerfi, umferðaskiltaaðstoð, árekstrarviðvörunarkerfi sem virkar líka í myrkri, á gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk, skynvæddur hraðastillir og akreinastýring.
Að auki eru dýrari gerðir með stærri álfelgum, lituðum rúðum afturí, tvískipt LED aðalljós, blindsvæðaskynjara, fjarlægðarskynjara að aftan, lykillausu aðgengi og hágæða hljómtækjum svo eitthvað sé nefnt. Þú getur síðan valið úr 11 litum og fjórum litum með sérlit af efri hluta bílsins. Við vorum á tvílitum perluhvítum með svörtum toppi.
Úr miklu að velja
Vélarstærðir í boði eru 1.2 lítra, 114 hestafla túrbóvél, 1.8 lítra, 122 hestafla Hybrid vél og svo rúsínan í pylsuendanum sem er 2.0 lítra, 180 hestafla Dynamic Force Hybrid vélin – sem er í reynsluakstursbílnum.
Eyðslutölur nýju Corollunnar eru með eindæmum flottar. Í minnstu vélinni er uppgefin eyðsla um 5.1 – 5.6 ltr/100km. Uppgefin eyðsla fyrir 1.8 lítra vélina er gefin upp 3.3 – 3.6 ltr/100km og fyrir stærstu vélina 2.0 lítra Dynamic Force vélin er eyðsla gefin upp 3.7 – 3.9 ltr/100km.
Slær í gegn
Okkar mat er að þessi nýja Corolla slær í gegn. Akstursþægindi, búnaður og eyðslutölur eru framúrskarandi. Endurbætt hönnun Corolla er að gera bílinn mun skemmtilegri í akstri en margra af keppinautunum, bíllinn er stöðugur í öllum akstri og fjöðrunin mjög góð.
Eina sem stingur í auga er ef til vill verðið – en reynsluakstursbíllinn er á 5.690.000 krónur nú í júní 2020. Þó verður að taka inní að gengið er mjög óhagstætt þessa dagana og ætla má að Covid hafi vanstillt venjulegt árferði í verðlagningu og þá ekki síður bíla en annarra vara. Við mælum með að þú óskir eftir tilboði í þína Corollu.
Helstu tölur:
Verð frá: 4.790.000 kr. (Verð í júní 2020).
Vél: 2.0 rms. Hybrid.
Hestöfl: 180.
Hámarkstog: 190/4400-5200 Nm/sn/mín.
0-100 k á klst: 7.9 sek.
Hámarkshraði: 180 km/klst.
CO2: 84-89 gr/km.
Eigin þyngd: 1340-1510 kg.
L/B/H 4370/1435/1790 mm.