- Tímamót í jeppasögunni – Toyota sýnir nýja Land Cruiser 250 í Kauptúni í dag laugardaginn 2. mars
Jeppaunnendum ætu að bregða sér í sýningarsali Toyota í dag, laugardaginn 2. mars, því þá verður í fyrsta sinn hægt að sjá Land Cruiser 250 á Íslandi. Þetta er upptakturinn að kynslóðaskiptum því seinna á árinu tekur Land Cruiser 250 við krúnunni af Land Cruiser 150 sem þjónað hefur vel og dyggilega í 14 ár.
Glæsileg saga þessa konungs jeppanna heldur því áfram.
Fyrsta eintakið af Land Cruiser 250 kom til landsins á dögunum. Þetta er sýningareintak sem er á ferð um Evrópu til að kynna nýja kynslóð og stoppar hér á landi í aðeins örfáa daga.
Í tilefni af komu bílsins og forsýningar á honum verður efnt til Land Cruiser sögusýningar þar sem rúmlega 70 ára sögu bílsins verða gerð skil og vel valin eintök frá fyrri árum verða sýnd.
Forsýning á Land Cruiser 250 og sögusýning í Toyota Kauptúni í dag laugardaginn 2. mars kl. 12 – 16.
(fréttatilkynning frá Toyota)
Umræður um þessa grein