Það var hressandi að fá að skoða XCeed í lok síðasta mánaðar en erfitt að bíða til dagsins í dag með að sýna lesendum hvernig hönnuðum hjá Kia tókst til. Breytingarnar á XCeed eru nefnilega mjög áhugaverðar – og græni liturinn maður!

Kia sló tvær flugur í einu höggi með því að kynna „facelift“ á XCeed í Frankfurt þar sem allnokkrir bílablaðamenn voru að prófa Kia Niro í lok júnímánaðar. Við sem þar vorum fengum ágæta kynningu á hvaða breytingar hafa verið gerðar á XCeed. Svo var bara að bíða þar til formlega mætti fjalla um þennan vinsæla bíl!

Vinsælli en aðrir Ceed
Af þeim bílum sem tilheyra Ceed-fjölskyldunni hefur XCeed verið þeirra vinsælastur. Bíllinn er hannaður, hugsaður, smíðaður o.s.frv. í Evrópu, fyrir evrópskan markað. Einn lykilþáttur að baki vinsældum bílsins er hversu há sætisstaðan er, en nú er rétt að geta þess að ég hef ekki prófað XCeed. Hvorki þann fyrri né þennan.

Í Frankfurt var farið yfir helstu útlitsbreytingar og ber þar helst að nefna LED aðalljós og afturljós, stuðarar eru stærri og framstuðari er með áberandi loftinntaki. Bíllinn er allur spengilegri eða sportlegri að sjá, ef svo má að orði komast, og það sem Kia hefur kallað „Tiger Nose“ grill er til staðar eins og t.d. á EV6 og Niro.
Farangursrýmið er nú stærra en það var 291/1243 l. en er núna 426/1378 l. og munar um það. Græjurnar eru betri en áður og eru af gerðinni JBL Premium. Einnig má nefna að fram í og aftur í eru USB og USB-C tengi og hraðhleðsla því möguleg.

XCeed verður fáanlegur sem tengitvinnbíll með 1.6 lítra bensínvél. Hann kemst um 60 km innanbæjar á rafhleðslunni eða tæpa 50 km í blönduðum akstri.

GT-Line útfærsla af XCeed lítur dagsins ljós og verð ég að segja að þessi finnst mér flottur! Auðvitað kemur hann í fleiri litum en þessum græna en sá græni hitti beint í mark hjá undirritaðri. Djarfur og alveg spes.










Að innan eru töluverðar breytingar eins og gera má ráð fyrir og allt uppfært í takt við tímann. Afþreyingarkerfið, átta tommu snertiskjár o.s.frv. Bíllinn er væntanlegur í september og nánari upplýsingar um verð ættu að koma þegar nær dregur hausti.

Myndir/Malín Brand
Myndir innan úr GT-Line: Kia Press Office
Þessu tengt:
Kia Niro: Framúrskarandi framvinda
EV6: Þetta er sko enginn ræfill
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein