Kia forsýnir minni og sportlegri Sportage fyrir Evrópu
Nýi jeppinn er reyndar líkari þeim sem nú er á útleið en þeim sem kynntur var fyrir Ameríkumarkað.
Kia kynnti nýtt útlit á Sportage fyrir Ameríkumarkað fyrr á þessu ári. Nú hefur Kia hannað aðra og minni útgáfu, sérstaklega hugsaða fyrir Evrópumarkað. Nýverið voru forsýndar skissur af hugmyndinni að þessum bíl.
Þó að skissur varpi aðeins ljósi á endanlega útkomu sjáum við fljótt að hinn evrópski Sportage er keimlíkur ameríkubílnum þegar horft er á framhluta hans.
Þetta er nokkuð smart hönnun sem reikna má með að veki nokkra athygli.
Sjá má að stuðarar eru með meira „evrópsku“ sniði. Stærri og klossaðri stuðarar sem settir hafa verið á evrópska bíla fyrir Ameríkumarkað hafa afbakað annars flotta hönnun. Ómögulegt er að segja til um hvort þessi hönnun muni ná inn í sýningarsali.
Frekari breytingar má sjá á afturhluta bílsins þar sem þriðji hliðarglugginn hefur verið felldur út og gluggasvæðið á hliðum bílsins orðin ein heild sem nær upp að þaklínu. Bíllinn virkar mun styttri en hægt verður að panta svartan topp á bílinn til að kalla fram andstæður.
Þetta er í fyrsta sinn sem Kia þróar Sportage sérstaklega fyrir Evrópu.
„Evrópskur Sportage mun verða meira í ætt við nafnið á bílnum, sportlegri og meira spennandi. Útlitið á að kalla fram flotta straumlínu og aukin afköst sem henta til dæmis evrópskum hraðbrautum,“ útskýrði breska svið Kia í kynningu á bílnum.
Þó svo að „krossover“ bílar séu vinsælir í Evrópu líkt og í Bandaríkjunum hafa þeir verið talsvert minni en ameríkubílarnir. Það kemur vafalítið til af því að um þrengri götur er að ræða í Evrópu og bílastæði minni og af skornum skammti.
Kia kynnir nýja Evrópubílinn þann 1. september næstkomandi; þeir munu streyma kynningunni á hinum ýmsu samfélagsmiðlum. Sala hefst fyrir árslok 2021.
Byggt á grein Autoblog.
Umræður um þessa grein