Nú er hann aftur falur, bíllinn sem Michael Schumacher keppti á 1998 í Formúlu 1. Við greindum frá því að bíllinn væri til sölu í byrjun mars síðastliðnum og hér er hann á uppboði fyrir öllu hærri upphæð. Uppboðið stendur frá deginum í dag, 18. ágúst og því lýkur þann 20. ágúst.
Það er samt ekki oft sem bílar á borð við þennan eru til sölu, enda er þetta afar merkilegur safngripur. Reyndar varð Mika Häkkinen heimsmeistari árið 1998 en bíllinn er samt merkilegur þótt ekki sé þetta sá sem ekið var á til sigurs það árið.
Ætli bíllinn myndi kosta meira ef Schumacher hefði unnið titilinn á honum? Tjah, það er nú það. En hvað eru milljónir til eða frá þegar um slíkan grip er að ræða? Hann er nefnilega metinn á 6 til 8 milljónir. Dollara sko! 850 milljónir íslenskra króna upp í rúman milljarð og öll þessi núll rugla fólk af málabraut hreinlega. Í það minnsta ruglast ég.
Verðmiðinn var 4.9 milljónir dollara í mars síðastliðnum en það var þá.
Ferrari F300 heitir hann og er frá árinu 1998.
Árið 1998 kepptu Schumacher og Mika Häkkinen um titilinn. Í lokakeppninni á Suzuka brautinni í Japan ræsti Schumacher fremstur en hann drap á bílnum fyrir upphitunarhringinn og varð því að ræsa fyrir aftan alla.
En Schumacher er ótrúlegur ökumaður; hann stormaði gegn um þvöguna og var kominn í þriðja sætið þegar hann ók yfir rusl á brautinni og skemmdi dekk.
Þremur hringjum síðar sprakk dekkið og titillinn féll í hlut Häkkinens. Við skulum gera ráð fyrir að búið sé að laga bilunina sem orsakaði að hann drap á bílnum fyrir keppnina.
En bíllinn er alla vega til sölu hér.
Ég fór aðeins að reikna hvernig best væri að gera þetta; það er að segja hvernig best væri að borga bílinn. Segjum til dæmis að manni bjóðist að dreifa greiðslum á 12 mánuði og gefum okkur að engir vextir eða aukakostnaður fylgi. Þá eru þetta rúmlega 70 milljónir á mánuði.
Það hljómar strax mun betur en að reiða fram 850 milljónir á einu bretti. Svo ekki sé talað um rúman milljarð…
[Myndir af vef söluaðilans]
Fleira þessu tengt:
Kannist þið við þá Farouk og Hassan Schumacher?
Heimildamyndin Schumacher
Schumacher: Mögnuð viðbrögð
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein