- Stóra átta strokka vélin frá Chrysler fær frest til 2025, þar sem Wrangler 392 Final Edition kemur óvænt aftur
Stellantis hefur eytt síðustu árum jafnt og þétt í að drepa stóru Hemi V8-vélina frá Norður-Ameríku vörumerkjunum sínum í nánast öllum bílum sem það fann möguleika að nota og breyta yfir í turbí línu sexu eða rafmagn. Chrysler 300 dó seint á síðasta ári og Dodge Durango mun brátt fylgja á eftir.
Flestir jeppamenn þekkja vel til Hemi-vélanna en í einföldu máli skilar hálfkúlulaga lögun meiri þrýstingi til stimpla í brunahólfinu en fleygformið. Skilvirkara loftinntakskerfið og kertastaðan valda brunanum fyrr, sem leiðir til meiri skilvirkni og krafts. Í meginatriðum brennur eldsneytið hraðar.
Jafnvel Jeep Wrangler, þar sem Hemi-vélin átti heimili í stuttan tíma í 6,4 lítra „392“ formi, var að búa sig undir að segja bless við vélina með „392 Final Edition“ fyrr á þessu ári. Nema það kemur í ljós að lokaútgáfan var ekki svo endanleg eftir allt saman.
Jeep hefur tilkynnt að vegna eftirspurnar muni 392 Final Edition snúa aftur árið 2025, sem gefur að minnsta kosti eitt ár í viðbót í sölu en upphaflega var áætlað. Það þýðir að 6,4 lítra, 470 hestafla V8 vélinmun lifa áfram á ef til vill ólíklegasta bílnum – stórum, kassalaga 4×4.
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/Jeep_Wrangler-2-1024x683.jpg)
Eins og áður mun 392 Final Edition ná hröðun upp á 60 mílur á klst (96,5 km/klst) á 4,5 sekúndum og keyra 13 sekúndna kvartmílu, sem er satt að segja fyndið í torfærubíl sem er í laginu eins og múrsteinn. Hann hefur líka fullt af torfærubúnaði, þar á meðal 35 tommu BFGoodrich alhliða dekkjum, Warn vindu með 3,6 tonna afkastagetu og hálf tommu fjöðrunarlyftingu umfram Wrangler sem er ekki með V8.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem framleiðandinn, gerir eitthvað í líkingu við þetta – hann kom áður með Dodge Durango Hellcat fyrir árið 2023.
![](https://www.bilablogg.is/wp-content/uploads/2024/06/Jeep_Wrangler-3-1024x705.jpg)
Vonandi mun vitneskjan um að Hemi standi lengur en búist var við róa fólk að þessu sinni, þó að eins og áður sé í rauninni engar líkur á því að þetta V8-knúna skrímsli sitji við hlið Jeep Avenger rafbílanna í sýningarsölum evrópskra jeppa. Í Bandaríkjunum mun bíllinn þó fara í sölu undir lok þessa árs.
Við eigum eftir að fá upplýsingar hvað gerist í þessum málum hjá Ísband í Mosfellsbænum
(frétt á vef CarThrottle)
Umræður um þessa grein