Jeep opnar opinberlega fyrstu nýju verksmiðjuna í Detroit í 30 ár
- Hin nýja 1,6 milljarða Mack Avenue bílasmiðjan mun smíða Grand Cherokee L
Í hugum margra er Detroit í Bandaríkjunum hin eina sanna „bílaborg“ – en staðreyndin er að þar hefur engin ný bílaverksmiðja verið opnuð í 30 ár!
En inni í fyrstu nýju samsetningarverksmiðjunni sem byggð var í „bílaborginni“Motor City síðan 1991 hangir lyktin af heitum málmi í loftinu þegar nýir Jeep Grand Cherokee L jeppar fara niður suðulínuna.
Fyrir Stellantis, sameinuðu bílasamsteypuna er það lyktin af peningum. Fyrir borgina Detroit þýðir það næstum 5.000 störf.
Stellantis opnaði dyrnar á nýju 1,6 milljarða dollara verksmiðjunni í Mack Avenue á fimmtudag og sýndi hluti af tæplega 280 þúsund fermetra verksmiðu sem var fullgerð og sett í framleiðslu að mestu á tíma heimsfaraldurs.

Grand Cherokee L jepparnir á færibandinu eru þeir fyrstu af nýrri kynslóð af mest seldu gerðarlínu Jeep, sem miða að því að auka sölu vörumerkisins til viðskiptavina sem vilja jeppa með þremur sætaröðum.
Fram að þessu buðu Grand Cherokee-jeppar aðeins sæti fyrir fimm. Nú, með pláss fyrir allt að sjö farþega, getur Jeep tekið á móti keppinautum eins og Explorer hjá Ford, GMC Acadia frá General Motors og stærri jeppum frá evrópskum og japönskum vörumerkjum.
Verksmiðjan, sem hóf smíði ökutækja í mars, starfar nú þrjár vaktir á dag, sagði stöðvarstjórinn Michael Brieda.
Á erfiðum vinnumarkaði sagði Brieda að stærsta áskorunin sem verksmiðjan hefði haft „væri að finna fólk sem gæti unnið í framleiðsluumhverfi.“ Umsækjendur um vinnu tóku próf í því hversu handlagnir þeir voru sem hluta af viðtölum sínum, sagði hann.
Um 2.100 íbúar Detroit City hafa verið ráðnir í verksmiðjuna, sagði fyrirtækið.
En fyrir bílaframleiðendur Detroit borgar eftirspurn eftir pallbílum og jeppum með bensínvélum enn reikningana.
Þegar framleiðslan í Mack-verksmiðjunni eykst mun Stellantis hafa tvær aðliggjandi verksmiðjur í Detroit sem geta smíðað 500.000 eða fleiri Grand Cherokee bíla á ári. Nærliggjandi Jefferson North Jeep verksmiðja var reist árið 1991 – og fram að þessu var nýjasta samsetningarverksmiðja Detroit.
Mario Holmes, framkvæmdastjóri sem hafði umsjón með þróun Grand Cherokee L, sagði að mikið átak færi í að hanna nýjan, skilvirkari grunn sem notaði ál og hárstyrk stál til að draga úr þyngd. Þó að nýja gerðin sé með þremur sætaröðum er hún í sama þyngdarflokki og fimm farþega jeppar, sagði hann.
Það verður boðið upp á rafmagnaða drifrás, en upplýsingar um það koma síðar, sagði hann.
Eitt merki um mikilvægi Grand Cherokee L er að Brieda, verksmiðjustjóri, sagðist ekki hafa átt í neinum vandræðum með að fá nægilegt magn hálfleiðara fyrir nýja bílinn, jafnvel þar sem Stellantis er með allt í hægagangi á samsetningarlínum fyrir önnur farartæki vegna alls skorts á flögum sem þarf fyrir kerfi nútíma bíla.
Umræður um þessa grein