Jeep Compass og Jeep Renegade í tengitvinnútgáfu komnir í forsölu hjá ÍSBAND
ÍSBAND Jeep umboðið í Mosfellsbæ hefur nú hafið forsölu á fyrstu tengiltvinnbílum (Plug-In-Hybrid) frá Jeep. Í boði eru Jeep Compass í þremur útgáfum, Limited, Trailhawk og „S“ og Jeep Renegade í Trailhawk útgáfu.
Áætluð afhending bílanna er í október n.k. og eru þeir hlaðnir búnaði s.s. alvöru fjórhjóladrif með fimm drifstillingum og lágu drifi, bakkmyndavél, rafdrifin leðursæti (Compass), rafdrifinn afturhleri (Compass), lykillaust aðgengi og ræsing, hiti í stýri og framsætum, 8,4” upplýsingaskjár með íslensku leiðsögukerfi, blindhornsvörn, bílastæðaaðstoð o.mfl.
Bílarnir eru boðnir á frábæru forsöluverði. Jeep Renegade Trailhawk kr. 5.499.000 og Jeep Compass Limited kr. 5.999.000. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn ÍSBAND.
Umræður um þessa grein