Íslenska nú aðgengileg fyrir öll Tesla ökutæki
Hugbúnaðaruppærsla frá Tesla
Tesla sendir hugbúnaðaruppfærslur mjög reglulega sem innihalda breytingar og bæta við nýjum eiginleikum fyrir stýrikerfið í gegnum internetið.
Með hugbúnaðaruppfærslu 2023.6.8, sem hefur nú þegar verið gefin út, er hægt að velja íslensku sem tungumál fyrir stýrikerfi ökutækisins og er hægt að hlaða henni niður í gegnum Wi-Fi.
Tesla hefur nú þegar hafið sendingar á uppfærslunni og rúllar hún út til allra Tesla eigenda á næstu dögum.
Íslenska er því aðgengileg sem tungumál í stýrikerfi allra Tesla ökutækja.
Bæði eldri og nýrri gerðir fá uppfærsluna.
Tesla er fyrsti bílaframleiðandinn sem setur íslensku sem eitt af tungumálum sem hægt er að velja um fyrir stýrikerfi allra ökutækja.
Nánar má skoða um þessar hugbúnaðaruppfærslu hér: Hugbúnaðaruppfærsla | Þjónusta Tesla Ísland
(fréttatilynning frá Tesla á Íslandi)
Umræður um þessa grein