IAA bílasýningin aftur í München 2023
Það hefur verið formlega tilkynnt að þýska bílasýningin IAA sem í áravís var haldin í Frankfurt annað hvort ár, verður haldan á ný í München árið 2023. Framvegis verður sýningin haldin í München á ári sem endar á oddatölu, en á ári með jafna tölu verður áfram haldið að sýna atvinnubíla í Hannover.

Sama fyrirkomulag er ráðgert á sýningunni, sem verður skipt niður á nokkra staði. Aðalsýningin verður á vörusýningarsvæði borgarinnar, en einnig á nokkrum stórum stöðum inni í borginni sjálfri.
Sýningin kallast IAA Mobility 2023, og á síðasta ári sóttu meira en 400.000 gestir sýninguna heim.
Aðstandendur vonast að sjálfsögðu eftir fleiri sýnendum en síðast. Dagsetning sýningarinnar er frá 5. til 10. september.
Umræður um þessa grein