Hyundai á Íslandi frumsýnir nk. laugardag, 22. júní milli kl. 12 og 16, nýja og uppfærða útgáfu af hinum vinsæla og aldrifna tengiltvinndrifna Tucson, mest selda jepplingi framleiðandans frá upphafi.
Þessi vel hannaði bíll hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir góða hönnun og ríkulegan búnað. Meginbreytingarnar eru á innanrýminu. Þar eru stjórntæki og öll aðstaða orðin fullkomnari og þægilegri og plássið nýtist ökumanni og farþegum enn betur en í fyrri útgáfum.
Fáguð útlitsbreyting
Hinn nýi Hyundai Tucson plug-In Hybrid hefur fengið ákveðnar útlitsbreytingar; að framan er m.a. uppfært grill og framsvunta ásamt endurhönnuðum LED dagljósum og aðalljósum. Að aftan eru einnig ný LED fjölnotaljós, sem sameina ýmsar aðgerðir, svo sem stöðuljós, bremsuljós og stefnuljós. Þá hefur úrval álfelga og bíllita verið aukið frá því sem áður var.
Endurhannað farþegarými
Í farþegarýminu blasir við alveg ný hönnun með auknum þægindum og tækninýjungum. Má þar nefna tvo 12,3 tommu sveigða miðlæga og stafræna skjái fyrir upplýsingar og stjórn afþreyingarkerfisins, þriggja punkta stýri með Shift by Wire (SBW) drifvali, sem skilar enn betri akstursupplifun, þráðlausa hleðslu sem er innbyggð í armpúðann hjá ökumanni, nýja tveggja svæða loftstýringu og fleira, en tæmandi búnaðarlýsingu fyrir öryggi og þægindi er m.a. að finna í verðlista á hyundai.is.
Aflgjafi og verð
Nýr Tucson plug-In Hybrid AWD er í boði í fjórum búnaðargerðum, Classic, Comfort, Style og Premium, sem allar eru búnar 252 hestafla 1600 cc bensínvél og rafmótor ásamt rafhlöðu sem hefur rúmlega 60 km drægni samkvæmt WLTP. Kaupverð er frá 8.190 til 9.490 þúsunda króna með 7 ára framleiðsluábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.
Saga Tucson
Tucon kom fyrst á markað árið 2004 m.a. hér á landi. 2009 var hann kynntur undir heitinu ix35 en 2015 fékk hann aftur upprunalegt heiti sitt. Alls hafa rúmlega sjö milljónir bíla verið framleiddar frá upphafi, þar af liðlega 1,4 milljónir fyrir Evrópumarkað. Bíllinn er framleiddur hjá bílaverksmiðju Hyundai í Tékklandi sem framleiddi rúm 158 þúsund eintök af Tucson árið 2023. Hann er mest seldi jepplingur Hyundai í álfunni.
Nýi bíllinn er frumsýndur með 7 sætum og rafdrifnum drifrásarmöguleikum Litli sportjeppinn er nú á snjallbílapalli Stellantis með litlum tilkostnaði,...
Umræður um þessa grein