Hyundai Ioniq 5 heimsbíll ársins 2022
Auk þess að vera valinn „heimsbíll ársins“ vann Ioniq 5 einnig flokkinn „rafbíll ársins“ og „hönnun ársins“.
Við fjölluðum um valið á „heimsbíl ársins 2022“ á dögunum og í gær varð ljóst um úrslitin: Hyundai Ioniq 5 „kom, sá og sigraði“ því hann náði þremur af helstu viðurkenningunum; hann var valinn „heimsbíll ársins“, „rafbíll ársins“ og hlaut einnig verðlaunin fyrri „hönnun ársins“.


Bílasýningin í New York hófst í gær, miðvikudaginn 13. apríl, með tilkynningu um „World Car Awards 2022“ og það kom í ljós að Hyundai Ioniq 5 sló „frænda sinn“, Kia EV6, og Ford Mustang Mach-E út.

Þetta er fyrsta árið sem allir keppendur í úrslitaflokki um heimsbíl ársins voru rafbílar. Þetta er til viðbótar við sérstakan rafbílaflokk í valinu, sem Ioniq 5 vann einnig og sló út Audi E-Tron GT og Mercedes-Benz EQS.
Hér að neðan má aðra vinningshafa:
- Rafbíll ársins: Hyundai Ioniq 5
- Borgarbíll ársins: Toyota Yaris Cross
- Lúxusbíll ársins: Mercedes-Benz EQS
- Sportbíll ársins: Audi E-Tron GT
- Hönnun ársins: Hyundai Ioniq 5

Verðlaunin „heimsbíll ársins 2022“ eru ákvörðuð af 102 manna dómnefnd frá 33 löndum. Meðal nýlegra sigurvegara heimsbíls ársins eru Volkswagen ID 4 árið 2021, Kia Telluride árið 2020 og Jaguar I-Pace árið 2019.
Umræður um þessa grein