- Hyundai á Íslandi frumsýnir nk. laugardag, 5. október milli kl. 12 og 16, fimmtu kynslóð aldrifna sportjeppans Santa Fe sem nýlega kom á Evrópumarkað.
Bíllinn hefur tekið algjörum útlitsbreytingum frá fyrri kynslóð og má segja að hann breyti að nokkru leyti núverandi „reglum“ varðandi hönnum stórra jepplinga því er nú t.d. leikur einn fyrir tvo að sofa í nýja bílnum.
Til þess eru framsætin færð fram, sætisbök annarrar og þriðju sætaraðar felld niður í slétt gólfið, sem þá myndast, og eru þá rúmir 2,2 metrar að lokuðum afturhleranum.
Rúmgóður 7 manna
Nýr Hyundai Santa Fe er með sætum fyrir sjö og er bíllinn í senn lengri, hærri og breiðari en fráfarandi kynslóð. Hér á landi verður hann í boði sjálfskiptur í tengiltvinnútgáfu við 253 hestafla bensínvél og rafmótor og veitir rafhlaðan bílnum 56 km drægni á rafmagni eingöngu.
Vegna meira rýmis, sjö sæta og fjölmargra tæknikosta og þæginda sem bíllinn býður hentar nýr Santa Fe enn betur en áður fjölskyldu- og útivistarfólki, m.a. vegna langboga á þaki sem eru meðal staðalbúnaðar og henta vel fyrir skíðafestingar og ferðabox.
Við afturhurðar er svo handfang sem hægt er að leggja niður í lárétta stöðu til að stíga upp á og yfir á afturhjólið til að ná betur til farangursins á þakinu.
Snjöll tækni og betra aðgengi
Þegar sest er inn blasir við farþegarými, sem hefur verið endurhannað frá grunni, m.a. með tveimur rúmlega 12″ skjám, fyrir mælaborð og afþreyingu. Öll sæti eru með hita og færanleg fram og aftur og hallanleg auk þess sem geymsluhólfið milli framsætanna er einnig opnanlegt fyrir aftursætisfarþega.
Afturhurðirnar opnast í 90° gráður fyrir enn betra aðgengi inn og út úr bílnum og að sama skapi opnast stór rafknúinn afturhlerinn í lárétta stöðu fyrir betra aðgengi að farangri.
Gott úrval mismunandi innstunga er að finna milli framsæta og í hliðum framsætanna fyrir aftursætisfarþega auk tólf volta innstungu við þriðju sætisröð. Hægt er að nota síma til að ræsa bílinn með því að leggja hann í þar til gert stæði milli framsætanna. Þá er einnig hægt að nota símann til að læsa og aflæsa bílnum svo fátt eitt sé nefnt.
Tvær útbúnaðargerðir
Nýr Hyundai Santa Fe er boðinn í tveimur útbúnaðargerðum; Limited, sem kostar 11.490 þúsundir króna og Calligraphy sem kostar 12.790 þúsundir króna. Allar nánari upplýsingar um nýjan Hyundai Santa Fe og búnað hans, bæði ríkulegan staðalbúnað og fáanlegan aukabúnað, eru að finna í verðlista á hyundai.is/verdlisti.
Umræður um þessa grein