Hvernig slökkva eldsneytisdælur á sér?
Youtube myndbandið sem fylgir þessari grein útskýrir eina af mikilvægustu spurningunum sem margir hafa eflaust velt fyrir sér einhverju sinni – hvernig veit eldsneytisdæla að hún á að stöðvast þegar tankurinn þinn er fullur?
Hið minnsta hefur sá sem þetta skrifar oft velt þessu fyrir sér, var búinn að gera mér grein fyrir því að þetta eru einhver „viðbrögð“ við mótstöðu en bara ekki hvernig. Hér er svarið komið:
Þegar þú ert að dæla eldsneyti á bílinn þinn hefurðu líklega velt því fyrir þér hvernig eldsneytisdæla á bensínstöð slekkur á sér þegar þú hefur fyllt tankinn á bílnum þínum af eldsneyti. Jæja, þetta myndband sem Steve Mold hlóð upp á YouTube sýnir hvernig kerfið virkar og það er meira upplýsandi en við höfðum búist við.
(Videó sem sýnir virkni eldsneytisdælu)
Rétt eins og Steve, gerðum við ráð fyrir að dælan hefði líklega notað einhvers konar „rafskynjara“ til að greina hvenær eldsneytið náði oddinum á dælustútnum eða eitthvað slíkt, en í raun eru nokkrir áhugaverðir þættir tengdir því að láta sjálfstoppandi dæluna virka.
Í myndbandinu klippir sá sem bjó til vídeóið þverskurð af stút fyrir eldsneytisdælu svo þú getir séð innri virknina og Steve Mould smíðaði einnig nokkrar mismunandi gerðir til að sýna betur hvern hluta dælunnar.
Einn af helstu eiginleikum dælunnar sem þú hefðir kannski ekki tekið eftir áður er lítið gat sem kallast „þrengslaskynjari“.
Þó að það hljómi ansi mikið eins og hátækniheiti fyrir einhvern rafmagnsíhlut, þá er það í raun algjörlega, vökva-vélrænt stýrður skynjari, sem virkar með því að nýta „þrengsla-áhrifin“.
Til að fá fulla útskýringu á því hvernig dælan slekkur á sér þegar bensínið nær endanum á stútnum skaltu skoða myndbandið.
Við erum hér að reyna að útskýra það sjálf – en sjónræn framsetning og skorinortar skýringar Steve gera það besta við að sýna hvernig þetta virkar allt saman, hið minnsta fyrir þá sem geta nýtt sér útskýringar hans í myndbandinu.
(grein á vef CarThrottle)
Umræður um þessa grein