Ef ég væri svona hress þá… já, þá myndi ég fjalla um svona 30 bíla á dag. Hið minnsta! Þessi ofurhressi indverski bílakarl er eins og sannur vélbyssukjaftur þar sem hann fjallar á fimm mínútum um Skoda Slavia. Myndi taka aðra um 20 mínútur en þessi er já, alveg spes.
Faisal Khan segir á YouTube síðunni sinni að hann sé fyrsti bíla-vídeó-bloggarinn á Indlandi og það er nú ekkert smá ef rétt er. Hann tekur þó að jafnaði til skoðunar einn bíl á dag og í þetta skiptið fjallar hann, sem fyrr segir, um Skoda Slavia: Tíu atriði sem hann kann að meta við bílinn.
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein