Hrein skemmtun í akstri

TEGUND: Ford Focus Active

Árgerð: 2019

Orkugjafi:

Afl, akstursþægindi, innrétting, veghæð.
Engin AUX og USB í stokk afturí.
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Hrein skemmtun í akstri

Brimborg kynnti fyrr á árinu splunkunýjan Ford Focus sem er fjórða kynslóð þessarar ágætu bifreiðar.  Við hjá Bílablogg.is kynntum okkur nýja Focusinn þegar hann kom í vor og vorum himinlifandi með bílinn.

Um þessar mundir kynnir Brimborg nýja útgáfu af Ford Focus sem er sérútgáfa af bílnum og kallast Active.  Sá er með 16 sm hærri veghæð en Trend og ST line útgáfurnar, 17 tommu Active felgum, listum á brettaköntum, sérstakri Active innréttingu og svo mætti lengi telja. Allavega verð ég að segja að bíllinn lítur sérstaklega vel út og virkar á mann sem bíll sem fer meira en venjulegur fólksbíll.

Ford Focus Active er 16sm hærri en aðrir Focus bílar.

Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar maður sest inn í nýja Focus Active bílinn er hve vel fer um mann í ökumannssætinu.  Plássið til hægri við mann er eins og maður sitji inni í stofu með fjarstýringuna við hendina.  Sjálfskiptining er nefnilega í snúningsrofa á milli sætanna.

Flott innrétting

Active innréttingin er vönduð og efnisval hið besta.  Sætin eru góð og halda vel við og veita ágætan bakstuðning.  

Glæsileg Active innrétting með stungnum saumi.

Eins og í mörgum millistæðarbílum í dag mættu seturnar vera örlítið lengri þannig að þær næðu betur undir fótleggina.  Í Focus Active kemur þetta ekki að sök því seturnar eru sérlega þægilegar og halda vel við í akstri.

Gott útsýni er úr öllum sætum Ford Focus Active.
Ljómandi fótapláss bæði frammí og afturí.  Takið eftir að gólfið er nánast slétt afturí.

Active er búinn START/STOP spartækni og þegar ég þrýsti á rofann til að gangsetja bílinn datt mér strax í hug kraftmikill sportbíll.  Hljóðið í þriggja strokka Ecoboost vélinni er satt best að segja mjög fallegt og það fyrsta sem maður hugsar, bíddu, er þetta þriggja strokka vél?  Ég ók af stað og fann strax að þessu ökutæki er hreinlega skemmtilegt að aka.

Aðgengi um bílinn er sérlega þægilegt og maður sest beint inn í bílinn en ekki niður í hann.

Snjöll tækni

Ford Focus er vel búinn bíll.  Í honum má finna allt það sem tækni dagsins í dag býður upp á.  Það snjallasta við þennan bíl er að þegar tók að dimma tók ég eftir því að framljósin beygðu aðeins á undan mér í beygjum.  Tækni nútímans býður upp á að ökuljós bílsins beygi með honum. Focus er með þann snjalla búnað að skynja beygjur og sveigjur í gegnum radarbúnað og koma ökumanninum þannig þægilega á óvart þegar ekið er í aflíðandi beygju og lýsir svæðið upp áður en bíllinn fer að fullu í beygjuna.

Ford Focus Active er búinn 182 hestafla þriggja strokka 1,5 lítra Ecoboost mótor. Ford hefur þróað þessa frábæru bílvél til að toga vel án þess að erfiða og óhætt er að segja að það var sama hvaða aðstæður við buðum bílnum upp á í reynsluakstrinum, hann þurfti aldrei að hafa fyrir því að stigið væri á bensíngjöfina.  

Það vantar ekkert upp á aflið í Ford Focus Active.

Við tókum góðan bíltúr austur að Nesjavöllum og reyndum bílinn í brekkum og beygjum.  Átta gíra sjálfskiptingin virkar einstaklega vel.  Í kringum 90 km hraða á klukkustund var snúningur vélarinnar í kringum 1800 snúningar og bíllinn malaði eins og hann væri í hægagangi.  

Samvinna skiptingar og þessarar litlu en aflmmiklu vélar var algjör.  Að sjálfsögðu kemur það eldsneytiseyðslu bílsins til góða en hún er um 6.9 í blönduðum akstri.  Ford Focus Active kemur með 5 aksturstillingum, fyrir venjulegan akstur, bæjarakstur, sport stillingu, ásamt stillingu fyrir hálku og grófara yfirborð.

Ford Focus Active er búinn 8 tommu snertiskjá og er skerpa skjásins sérlega góð.  Bakkmyndavélin er skýr og er með beygjuaðstoð.  SYNC raddstýrt samskiptakerfi frá Ford, Apple CarPlay og Android Auto, þráðlaus hleðsla fyrir síma, 2 USB tengi en við söknuðum þeirra reyndar afturí. Það snjallasta sem við sáum í þessum bíl er að erfitt er að hurða bíl með honum.  

Bíllinn er snotur í útliti og kraftalegar 17 tommu felgurnar njóta sín í innrömmuðum hjólaskálunum.

Þegar hurðir bílsins eru opnaðar krækist plastlisti yfir hurðarbrúnina og ver hana fyrir höggi.  Þetta þýðir að ef þú verður fyrir því óláni að reka hurð utan í annan bíl eru nánast engar líkur á að hann tjónist og enn síður Focusinn með þessari snjöllu uppfinningu.

Hægt er að fá fjölbreyttan aukabúnað í Ford Focus Active eins og panorama glerþak, dökkar rúður í farþegarými, Ford Pass samskiptakerfi með appi í símann þinn þar sem þú hefur aðgang að bílnum í gegnum snjallsíma. Bílastæðaaðstoð, svartmálað þak, hljómtækjapakki með B&O hljómtækjum, fjölskyldupakki með rafdrifnum barnalæsingum, hæðarstillanlegu framsæti með mjóbaksstuðningi og armpúða aftur í auk fjölda annars búnaðar.

Helstu tölur:

Verð frá: 3.990.000 kr. (Reynlusakstursbíll 4.350.000 kr.) sept. 2019

Vél: 1.500 rms

Hestöfl: 182 við 6.000 sn.

Newtonmetrar: 240 við 1.500-3.200 sn.

0-100 k á klst: 8,7 sek.

Farangursrými: 375 ltr.

CO2: 107-133 g/km.

Eigin þyngd: 1.203 kg.

L/B/H 4378/1825/1452 mm.

Eyðsla bl ak: 6,9 l/100 km.

?

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar