Grundvallaratriði vélfræðinnar á einu bretti
Er það hægt? Að útskýra 20 grundvallaratriði vélfræðinnar með einhverju kubbadóti í nokkurra mínútna myndbandi á YouTube? Það sem meðfylgjandi myndband sýnir er auðvitað mikil einföldun á flóknum atriðum en það sem er einfalt er oft besti og fýsilegasti kosturinn t.d. þegar kemur að því að útskýra hvernig bílvél virkar í grunninn.
Það sem undirritaðri þykir virkilega áhugavert við þetta myndband er sú staðreynd að á fjórum dögum eru áhorfin komin upp í 4.000.000! Milljón á dag. Hvað segið þið? Ofmetið kubbadót eða sniðug aðferð til að útskýra?
Nokkrar tækniskýringar án kubba:
Hvernig virka vatnslásar?
Hvernig virka diskabremsur?
Hvernig gírkassar eru í rafbílum?
Vetnisknúin V8 vél: Svona virkar hún
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein