GM-Wuling í Kína selur 15.000 rafknúna smábíla á 20 dögum
Sala á nýjustu gerð rafknúins ökutækis SAIC-GM-Wuling Automobile, ódýrri, fjögurra sæta Wuling fólksbifreið, fór yfir 15.000 eintök fyrstu 20 dagana eftir að hafa komið í sölu þann 24. júlí.
Á sama tímabili fóru pantanir rafbílnum yfir 50.000, að því er kom fram hjá þessu sameiginlegt verkefni á sviði smábíla milli General Motors og SAIC Motor í þessum mánuði.
Sala fyrir fram og pantanir hafa gert þennan smábíl undir merki Wuling vinsælasta rafbílinn sem þeir hafa framleitt.
Ökutækinu, sem kallast Hongguang Mini EV, var hleypt af stokkunum á bílasýningu í Chengdu borgar í Suður-Kína í síðasta mánuði og var byrjunarverð 28.800 júan (ISK 574,000).
Kemst 120 km á einni hleðslu
Bíllinn er með litíumjónarafhlöðum og getur ekið í allt að 120 km á einni hleðslu og á 105 km hraða á klukkustund.
Markhópur viðskiptavina eru ungir ökumenn í kínverskum borgum, samkvæmt SAIC-GM-Wuling.
Hongguang Mini EV er þriðji rafbíllinn-varan sem SAIC-GM-Wuling hefur kynnt í kjölfar tveggja sæta Baojun rafmagns fólksbifreiðar og Wuling „minibus“.
SAIC-GM-Wuling, með aðsetur í suðvesturhluta Kína, Liuzhou, smíðar aðallega litla smásendibíla eða „minibus“ fyrir Wuling vörumerkið og smábíla undir Baojun merkinu.
Í júlí jókst sala fyrirtækisins í Kína fjórða mánuðinn og stökk upp um20 prósent í 130.000 bíla samkvæmt SAIC.
Á fyrstu sjö mánuðunum lækkaði hinsvegar uppsöfnuð afhending bíla um 23 prósent í 661.040 entök og endurspeglaði það mikinn samdrátt í fyrsta ársfjórðungi þegar kórónavírus herjaði á Kína.
Í Kína rekur GM einnig sérstakt sameiginlegt verkefni með SAIC sem framleiðir og markaðssetur fólksbíla fyrir Cadillac, Buick og Chevrolet.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein