Peugeot á Íslandi I Brimborg, peugeotisland.is
GLÆNÝR PEUGEOT 2008 SUV FRUMSÝNDUR HJÁ BRIMBORG 19.-28. MARS Í REYKJAVÍK OG Á AKUREYRI.
-PEUGEOT 2008 SUV ER NÝR FRÁ GRUNNI
Brimborg frumsýnir Peugeot 2008 SUV sem er alveg nýr bíll frá grunni og hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið útlit. Hann er einstaklega vel búinn og verður í boði með nýjustu kynslóð af sparneytnum PureTech vélum með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu og 5 ára ábyrgð. Í maí verður Peugeot 2008 SUV í boði sem 100% hreinn rafbíll.
Eins og aðrir nýir Peugeot bílar kemur nýr 2008 með nýjustu kynslóð af Peugeot 3D i-Cockpit innréttingu sem er fullkominn stafrænn heimur þar sem mælaborð og stjórntæki eru í sjónlínu ökumanns og bæta þannig akstursgæði.
RÚMGÓÐ SUV HÖNNUN, HÁ SÆTISSTAÐA OG HÁTT UNDIR LÆGSTA PUNKT
Peugeot 2008 SUV er notendavænn og fjölhæfur með háa sætisstöðu svo það er einstaklega þægilegt að ganga um hann og hann er hár undir lægsta punkt. Hönnunin skapar einstaklega gott rými að innan fyrir alla fjölskylduna og mjög gott farangursrými.
FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI
Öflug öryggistækni aðstoðar ökumanninn við aksturinn. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active City Break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi um einstakan öryggisbúnað í Peugeot 2008 SUV sem tryggir öryggi allra farþega.
MEÐ MYPEUGEOT® APPINU FÆST AFAR GÓÐ YFIRSÝN YFIR AKSTURINN OG ÞJÓNUSTUNA
Einfalt er að vera með yfirsýn í snjallsímanum með MyPeugeot® appinu. Hægt er að skoða upplýsingar um bílinn þ.á.m. stöðu kílómetramælis, stöðu á þjónustu, lengd ferðar, sjá upphaf- og lokastað ásamt upphafs- og lokatíma og panta tíma á þjónustuverkstæði.
Glænýr Peugeot 2008 SUV verður frumsýndur 19.-28. mars í Brimborg Reykjavík og Akureyri.
Á Akureyri frumsýnir Brimborg einnig Peugeot e-208, 100% rafbíl sem kosinn var bíll ársins í Evrópu 2020. Þá verður Peugeot 3008 PHEV, fjórhjóladrifinn, 300 hestafla tengiltvinnjeppi einnig á staðnum bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Peugeot 2008 SUV er til afgreiðslu strax og hægt er að skoða úrvalið á lager í Vefsýningarsal Brimborgar á brimborg.is
Peugeot 2008 SUV beinskiptur kostar frá 3.360.000 kr. og sjálfskiptur frá 4.020.000 kr.
Peugeot 2008 SUV er fáanlegur í fjórum búnaðarfærslum; Active, Allure, GT-line og GT.
PEUGEOT e-2008 100% HREINN RAFBÍLL VÆNTANLEGUR Í MAÍ
Peugeot e-2008 sem er 100% hreinn rafbíll með 320 km drægni verður síðan frumsýndur í maí. Hægt er að tryggja sér eintak í forsölu í Vefsýningarsal Brimborgar á brimborg.is en forsalan hefur farið gríðarlega vel af stað.
Nánari upplýsingar um Peugeot 2008 SUV er á finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is. eða hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802.
Umræður um þessa grein