Geiturnar skemmdu nýja lögreglubílinn
Þær rispuðu lakkið, fóru upp á þak og skemmdu bæði framrúðu og rúðuþurrkur. Þær voru tólf saman, geiturnar sem gerðu aðsúg að lögreglubílnum. Mæja sat í súpunni en hún átti að gæta geitanna.
Þetta er ekki alveg ný saga en það er heldur engin nýlunda að geitur skemmi það sem þær komast í og japli á öllu mögulegu. Hins vegar er öllu fátíðara að lögregla „handtaki“ geitur og þannig var það í þetta skiptið.
Lögreglan í bænum Chennai á Indlandi hafði fengið spánnýjan lögreglubíl til afnota. Bíllinn var af gerðinni Toyota Innova og var ekki fyrr kominn á götuna en skemmdarvargar unnu á honum stórtjón.
Babu ekki kátur
Skemmdarvargarnir voru raunar jórturdýr af ætt slíðurhyrninga, almennt kallaðir geitur. Þær voru ekki þrjár í þetta skiptið heldur tólf. Sá lögreglumaður sem ábyrgð bar á bílnum heitir því mjög svo viðeigandi nafni Ganesh Babu.
Babu þessi náði skepnunum eða greip þær öllu heldur glóðvolgar þar sem þær unnu spellvirkin á lögreglubílnum, steinsnar frá sjálfri lögreglustöðinni. Þær höfðu þá náð að rispa bílinn og beygla verulega.
Áður komið við sögu lögreglu
Það var í sjálfu sér gott að lögreglu tókst að hafa hendur í „hári“ nokkurra þeirra sem tilheyrðu þessum óaldarflokki því þetta var ekki í fyrsta sinn sem geiturnar gerðust sekar um spellvirki í bænum.
Áður hafa þær nefnilega ítrekað skemmt bíla íbúa, verslunareigenda og nú lögreglunnar. Og þar fóru þær endanlega yfir strikið. Enda tók lögregla þrjár þeirra fastar í þetta skiptið og máttu þær dúsa hjá samtökum dýraverndarsinna í bænum.
Góð ráð dýr og dýr ekki góð
Hvað svo? Þegar búið var að taka skepnurnar fastar var ekkert annað hægt að gera en hafa uppi á manneskjunni sem átti að passa að geiturnar gerðu ekki óskunda. Það var kona nokkur sem átti að gera það; hin 37 ára gamla Mæja, eða Mary Arogynathian.
Þegar síðast var greint frá stöðu mála stóðu leikar þannig að Mæja þurfti að sýna fram á að hún væri réttmætur eigandi hinna tortímandi geita til þess að lögregla gæti beint kæru að eiganda geitanna í stað geitanna sjálfra.
Mæja stóð sig augljóslega ekki í stykkinu og hefur að öllum líkindum gerst sek um vanrækslu svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það sem gæti þó hafa komið lögreglu í koll var hvernig staðið var að „handtökunni“ sjálfri í upphafi. Þrjár geitur voru teknar fastar en það þýðir að níu gengu áfram lausar og hver veit hvað þær hafa gert af sér eftir þetta?
Dómgreindarbrestur hér og vanræksla þar. Svona getur lögreglustarfið verið margslungið og snúið. Svo ekki sé minnst á líf geitanna.
Dæmin eru mýmörg um löggubílageitur eins og meðfylgjandi myndband frá Ameríku sýnir:
Þessu tengt:
Saga af íslenskri bílageit
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein