- Miklar umræður hafa skapast síðustu daga um tilkomu svonefnds E10 bensíns á markaðnum, um gagnsemi þess og ógagns – og hreinlega skaða á sumum bílum.
Þessari breytingu var skellt á hér á landi með nánast engum fyrirvara og það sem verra er þá er þetta nánast eina bensínið sem stendur ökumönnum til boða, því eftir því sem okkur sýnist er aðrir valkostir vandfundnir.
Í sumum tilvikum er eini valkosturinn að nota 98 oktan bensín sem er mun dýrara og til sölu á fáum bensínstöðvum aðallega á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri, en að því við vitum best ekki á öðrum stöðum.
Í nágrannalöndum okkar geta neytendur auk E10 keypt E5, 95 oktan bensín og 98 oktan bensín.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda (fÍB) birti mjög góða umsögn um þetta nýja bensín, sem við hvetjum alla til að lesa, en hægt er að lesa þetta hér.
En hvað er E10 bensín?
Samantekt:
- „E10“ er bensíntegund sem inniheldur 10% lífetanól.
- Nota á eingöngu „E10“ í ökutækjum sem henta til notkunar „E10“-eldsneyti.
- Gildir fyrir 90% af nútíma flota bíla.
- „E10“ býður upp á umhverfislegan ávinning umfram E5 bensín.
- „E10“ inniheldur áfengi og er rakafræðilegt.
- Notkun „E10“ getur leitt til skemmda á málmum, þéttingum og plasti ef ökutækið er ekki notað í lengri tíma.
„E10“ hefur verið lögboðið vegna þess að það samanstendur að hluta af „endurnýjanlegri“ orku og hjálpar því til við að gera akstur bíla umhverfisvænni. Hefðbundnu Euro 95 (E5) bensíni hefur þar af leiðandi að mestu verið skipt út fyrir „E10“ eldsneyti.
„E10“ er bensín sem að hámarki 10% lífetanóli hefur verið bætt við. „E“ stendur fyrir etanól, í þessu tilviki aðeins lífetanól. Lífetanól er tegund áfengis og er t.d. unnið úr sykri, maís eða hveiti.
„E10“ á því aðeins við um bíla með bensínvél“.
Eins og að taka átta þúsund bíla úr umferð
Því hefur verið slegið upp í fjölmiðlum að með því að skipta um bensíntegund dregur það álíka mikið úr kolefnislosun og við það að taka um átta þúsund bíla úr umferð. Öll íslensku olíufyrirtækin eru nú með umhverfisvænna bensín.
Einn talsmanna olíufélaganna, segir þetta mikilvægt skref í átt að kolefnishlutleysi Íslands. „Í dag eru rúmlega 150 þúsund bensínbílar keyrandi um götur landsins og við erum með þessu skrefi, miðað við innflutningstölur í fyrra, að taka sjö til átta þúsund bensínbíla af götunum”.
En í huga okar hér á Bílabloggi er efinn um að allur þessi „umhverfissparnaður“ sé að skila sér að fullu vegna þess að bílarnir eru í raun að eyða meiru – og að ekki sé talað um allar umferðarhindranirnar á götunum – sérstaklega í Reykjavík þar sem umferðin silast oft áfram með tilheyrandi stoppum sem kalla bara á meiri útblástur frá bílnum.
Etanól er eldsneyti byggt á alkóhól-undirstöðu sem framleitt er við gerjun ýmissa plantna, þar á meðal sykurreyrs (á myndinni hér að ofan) og korns, ásamt aukaafurðum þeirra.
Ólíkt venjulegu blýlausu bensíni er sagt að etanóleldsneyti sé að hluta til kolefnislaust í andrúmsloftinu. Þetta er vegna þess að þegar plönturnar sem verða lífeldsneyti vaxa, gleypa þær að sögn meiri koltvísýring en það sem losnar út í loftið við eldsneytisframleiðslu og bruna.
Þetta vegur að hluta til upp á móti losun gróðurhúsalofttegunda sem myndast við framleiðslu og notkun þess, en hversu mikið er enn virkt umræðuefni.
Hverjir geta nota E10 bensín?
Alla jafna er ökumönnum bíla sem framleiddir voru fyrir árið 2002 ráðlagt að nota ekki E10 á sína bíla. Frá og með 2011 eiga allir nýir bílar á Íslandi að vera með vélar sem eru E10 samhæfðar.
Bílarnir eyða meiru!
Etanól hefur lægra orkuinnihald en bensín, svo almennt séð gefur það „minna fyrir peninginn“. Þetta þýðir að þú munt líklega ekki keyra alveg eins langt á E10 tanki og þú myndir gera á tanki upp á 95 bensíninu sem var á dælunum áður eða á 98 oktan bensíni.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum þá er orkuinnihaldið um 30-33% minna en þess 95 oktana bensíns sem var á dælunum fram að þessum útskiptum – og sparneytni bíla minnki á bilinu 3-5% með notkun á þessu nýja E10 eldsneyti.
Eykur uppsöfnun vatns
Etanól er einnig rakafræðilegt, sem þýðir að það gleypir vatn. Ef það verður í tengingu við utanaðkomandi andrúmslofti of lengi mun eldsneytið gleypa til sín raka úr loftinu. Þetta getur valdið alvarlegum vandamálum með eldsneytistanka úr stáli, eldsneytislögnum og vélarhlutum.
Eigendur eldri bíla í vandræðum
Núna strax eru uppi háværar raddir meðal eigenda eldri bíla og mótorhjóla, sérstaklega raunverulegra fornbíla.
Engir raunverulegir fornbílar munu geta notað þetta nýja E10 bensín. Í eldsneytiskerfum þesar bíla eru allt of margir íhlutir sem hreinlega munu skemmast eða eyðileggjast með tilkomu E10.
Í blöndungum slíkra bíla og mótorhjóla eru þéttingar sem munu skemmast af völdum etanóls og ýristútar eldsneytis munu stíflast!
Þurfa eigendur eldri bíla að eignast sína eigin bensínstöð?
Háværastar eru raddir meðal samtaka þeirra sem eiga gömlu bílana, samtaka á borð við Krúser-klúbbinn og Fornbílaklúbbinn. Er hugsanlega eina svar þeirra að koma sér upp sinni eigin bensínstöð?
Svipað ástand er meðal eigenda mótorhjóla, sérstaklega eldri gerða, og þá einkum vegna lélegs aðgengis að 98 oktan bensíni hér á höfuðborgarsvæðinu, svo ekki sé talað um úti á landi, þar sem það er talið hentugra.
Mótorhjólasamfélagið hefur sagt að etanól sé ekki gott fyrir mótorhjól. Etanól getur valdið ýmsum vandamálum: Minni afköst og þú ferð færri kílómetra á líternum, þar sem etanól hefur þriðjungi minni orku en hreint bensín. Frásog vatns, dregur enn frekar úr eldsneytisnýtingu og getur hugsanlega leitt til vandamála.
Að því að við höfum séð á ýmsum vefsíðum þá eru nýjustu gerðir mótorhjóla betur búin að taka við þessu nýja E10 bensíni.
(samantekt af ýmsum vefsíðum)
Umræður um þessa grein