Myndum af nýja Range Rover lekið á netið
Fyrstu myndir sem birtast af nýja flaggskipsjeppa Land Rover
Myndir sem taldar eru sýna nýjan Range Rover fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum en bíllinn verður ekki kynntur fyrr en í næstu viku.
Jaguar Land Rover birti mynd af næstu kynslóð Range Rover flaggskipi sínu fyrr í vikunni og staðfesti dagsetningu formlegrar kynningar sem verður þann 26. október. Sú mynd sýnir bílinn á mikilli hreyfingu, þannig að ekki var gott að greina útlit hans.
En í dag hafa birst myndir af þessum nýja lúxusbíl á bílavefsíðum. Myndirnar, sem sagt er að hafi lekið á netið, sýna glöggt útlit nýja bílsins að innan sem utan.
Vefur Auto Express segir að fjölmargar njósnamyndir af næsta Range Rover í Bretlandi og víðar bendi til mikillar þróunar á hönnunarmáli (e. design language) bílsins. Byggt á þessum myndum sem myndu örugglega passa við framenda nýja Mercedes GLS og BMW X7, sem eru keppinautar vörumerkisins, þá er nýi Range Rover með svipuðum framenda, grilli og fyrirkomulagi framljósa og notað er í núverandi kynslóð Range Rover fjölskyldunnar.
Hin klassíska tveggja kassa hönnun bílsins er enn til staðar sem og sterk axlalína og ný útfærsla á lóðréttu smáatriðunum við dyrnar nálægt A-bitanum.
Afturendi bílsins umbreytist nokkuð og virðist þar sem ný afturljós í fullri breidd séu á afturhleranum, með lóðréttum ljósasamstæðum á afturenda bílsins.
Auto Express segir að vitað sé nú þegar að nýr Range Rover verður fyrsti Land Roverinn á nýjum MLA Flex grunni vörumerkisins, sem hefur verið hannaður þannig að á honum megi smíða bíla með brennsluvélum, tengitvinnbúnaði og fullkomlega rafknúnum aflrásum.
Þetta verður einn af þremur bílum sem við vitum að munu nýta Land Rover nýja MLA Flex kerfið, hinir eru nýr Range Rover crossover og næsta kynslóð Range Rover Sport.
Búist við rafmagnsútgáfu 2024
Við gætum þurft að bíða um stund áður en við sjáum Range Rover rafbíl. Gert var ráð fyrir að hann komi árið 2024, um það bil tveimur og svolítið fleiri árum eftir að nýja útgáfan af fimmtu kynslóð Range Rover með brunahreyfli sem og tengitvinnútgáfur koma á götuna.
Nútímalegri V8-vél frá BMW
Það hefur lengi verið orðrómur um að Land Rover muni nýta BMW afl í nýja Range Rover, en 5,0 lítra forþjöppu V8 valkosturinn með allt að 557 hestöfl í Range Rover SVAutobiograhy og á fjölmörgum bílum JLR er á útleið.
Þess í stað mun nútímalegri 4,4 lítra túrbó V8 vél sem notuð er í xDrive 50i útgáfum af BMW jeppunum X5 og X7 koma í staðinn undir vélarhlíf bresku gerðarinnar.
Líklega munu sex strokka dísilvélar frá fyrri gerð með mildri blendingsaðstoð halda áfram, þó að ekki sé vitað hvort stækkaður tengitvinnbúnaður Range Rover mun nota nýja aflrás miðað við P400e valkostinn sem er á útleið, með fjögurra strokka bensínvél ásamt rafhlöðu og rafmótor.
Útgáfa með lengra hjólhafi mun bjóða vera rúmbetri og með lúxussæti
Fyrri og núverandi gerðir Range Rover hafa boðið kaupendum upp á gott rými fyrir fimm fullorðna og það mun verða raunin með þessa nýju gerð.
Útgáfur með lengra hjólhafi ættu einnig að gefa kaupendum kost á meira plássi í annarri sætaröð, sem bætir við tveimur stærri aftursætum sem hafa miklu meiri stillanleika til að auka þægindi.
Allar upplýsingar og myndir verða afhjúpaðar í næstu viku og opnað verður fyrir pantanir þegar bíllinn verður formlega kynntur þann 26. október. Fyrstu afhendingar munu þó ekki verða fyrr en í fyrsta lagi vorið 2022 og verð mun líklega byrja í rúmum 90.000 pundum eða um 16 milljónum króna.
(fréttir á vef Auto Express, Motor1 og Gear Patrol)
Umræður um þessa grein