Daginn sem Ken Block, atvinnurallari með meiru, hættir að aka sem óður þá er tvennt sem getur hafa gerst:
Hann er ekki lengur í tölu lifenda
Hann er alls ekki akandi
Þessi stórkostlegi bílstjóri, hinn rúmlega fimmtugi Ken Block, hóf formlegt samstarf við Audi fyrir rúmri viku. Samstarfið snýst um rafbíla og verður fjallað nánar um það síðar hér á Bílabloggi.
Fékk að kíkja í „leyniskúrinn“
Í fyrstu heimsókn kempunnar í höfuðstöðvar Audi fékk Block auðvitað að kíkja í „skúrinn“. Ekki bara venjulegan skúr heldur söguskúrinn sjálfan. Þar sem söguleg tryllitæki framleiðandans eru geymd og nánast falin eins og leynivopn.
Þar er að finna sturlaða rallýbíla og sjást þeir vel í meðfylgjandi myndbandi og geðshræringin við það að sjá þessa bíla kom hárunum til að rísa og augljóst að gæsahúðin hríslast um Block. Sjálf hefði ég sennilega farið að skæla en sem betur fer sést þessi töffari ekki skæla í myndbandinu.
En að bjóða manni eins og Ken Block í skúrinn krefst þess auðvitað að hann fái að prófa einhverjar af græjum skúrsins.
Annað væri eins og að fara með nammisjúkan nammigrís í gotterísbúð til þess eins að horfa!
Og okkar maður fékk sko að prófa. Audi Sport quattro S1 E2, Sport Quattro RS 002, Audi V8 quattro DTM og framtíðarbíllinn Audi e-tron Vision Gran Turismo voru á meðal ökutækja sem hann prófaði.
Honum leiddist þetta ekki baun! Þvert á móti! Enda hafði hann dreymt um að fá að prófa þessa bíla, árum saman.
En höfum ekki fleiri orð um það heldur er hér myndband og þið sem hafið gaman af almennilegri tónlist (LESIST: fimm cyl. söngur og önnur fögur ökutækjahljóð) skulið bara hækka vel þegar maðurinn byrjar að aka (fyrir óþolinmóða:á níundu mínútu).
Og síðast en ekki síst er dásamlegt að fylgjast með svipbrigðunum á andliti Ken Block, sem eðli máls samkvæmt, brosir mikið og fallega:
Umræður um þessa grein