Willys, Bantam-kerrur, dekk og svo margt fleira má sjá á ljósmyndum sem ljósmyndari Life Magazine tók í nóvember 1949 á japönsku eyjunni Okinawa. Myndaserían virðist ekki hafa verið birt í tímaritinu sjálfu á sínum tíma en þær hafa á seinni árum öðlast frægð á vefnum.

Það er því miður ekki margt um myndefnið að segja, þ.e. hvað varð um alla bílana og það sem á myndunum er. Þess vegna ætla ég hér á milli mynda að fjalla örlítið um ljósmyndarann sem myndirnar tók á sínum tíma.

Bandaríski ljósmyndarinn Carl Mydans var fæddur skammt frá Boston árið 1907 og lést í New York árið 2004.

Það var árið 1936 sem Mydans hóf störf hjá Life Magazine og þar kynntist hann blaðakonunni Shelley Smith. Þau gengu í hjónaband árið 1939 og voru fyrstu hjónin sem unnu fyrir tímaritið.





Saman ferðuðust Mydans hjónin: Hann myndaði hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar fyrir Life Magazine á meðan hún skrifaði og er sagt að þau hafi ferðast um 72.000 kílómetra í stríðinu.

Árið 1941 voru hjónin tekin til fanga á Filippseyjum og þar (Manila) voru þau í haldi í tæpt ár. Þau voru flutt til Sjanghæ í Kína og voru þar í haldi sem stríðsfangar þar til í desember 1943 en þá var þeim sleppt. Samtals voru þau tvö ár í fangelsi.

Þrátt fyrir þessa erfiðu reynslu í Asíu flökkuðu hjónin um álfuna að stríði loknu og næstu áratugina voru þau á flandri.

Sömuleiðis var Mydans á vettvangi í Kóreustríðinu fyrir Life Magazine og tók ljósmyndir og er óhætt að segja að þau hjónin hafi séð ýmislegt óhuggulegt á ferlinum.


?
















Fleiri áhugaverðir bílakirkjugarðar:
Toyota-kirkjugarðurinn á hafsbotni
Båstnäs: Þar sem náttúran hefur gert bílana græna
Svo eru það bílarnir sem hafa verið geymdir neðanjarðar:
Afleit hugmynd að grafa bílinn og geyma í hálfa öld
Fleiri grafnir bílar í Tulsa
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein