Hvað kosta vetrardekkin?
Hjólbarðar eru hluti af rekstrarkostnaði bíleigenda. Framboðið er talsvert og verðið eftir því. Það skiptir reyndar gríðarlegu máli að aka um á dekkjum sem henta bæði bíl og árferði.
Markaðurinn samanstendur af nokkrum stórum dekkjasölum sem bjóða upp á helstu dekkjamerkin á markaðnum í dag. Þau fyrirtæki sem við skoðum hér eru: Dekkjasalan, Dekkjahöllin, Barðinn, Klettur, Hjólbarðaþjónusta N1, Max 1, Nesdekk, Gúmmívinnustofan, Sólning og Betra grip.
Á öllum þessum dekkjaverkstæðum er hægt að kaupa dekk og ætlum við að bera saman verðin á nokkrum algengustu stærðunum.
Ansi mikil breidd í úrvali
Reyndar sögðu þeir dekkjasalar sem við höfðum samband við að með tilkomu rafbíla hefði úrvalið aukist enda mjög mismunandi stærðir undir rafbílunum og oft stærri dekk – allt upp í 21 tommu.
Rafbílar noti dekk sem eru breiðari og þola meiri burð enda rafbílar mun þyngri vegna rafhlaðanna.
Skoðum verð á dekkjum eins og passa undir venjulegan fólksbíl t.d. Kia Ceed. 185/55/15 og reiknum með heildarverði fyrir fjögur dekk (án umfelgunar).
Mismunandi góðir hjólbarðar
Einkenni góðra hjólbarða eru að munstur veiti stutta hemlunarvegalengd, þrýsti vatninu vel frá gripfletinum og séu hljóðlátir.
Verðin eru auglýst verð á heimasíðu dekkjaverkstæðanna 8. október 2022. Skoðuð eru hæstu verð og lægstu verð burtséð frá lagerstöðu dagsins.
Dekkjasalan
185-55-15 Nankang SW-8 86T – nagladekk – verð 64.000 kr.
185-55-15 Sailun Ice Blazer WST3 86T – heilsársdekk – neglanleg – verð 66.000 kr.
Dekkjahöllin
185-55-15 – Winterclaw Extreme Grip – neglanleg dekk – verð 51.984 kr.
185-55-15 – Yokohama IG35 – nagladekk – verð 64.504 kr.
Barðinn
185/55R15 V Goodyear Ultra Grip – óneglanleg – verð 95.960 kr.
185/55R15 V Roadstone Winspike – nagladekk – verð 59.960 kr.
Klettur
185/55R15 V Goodyear Ultra Grip 9+ 82T – óneglanleg – verð 95.960 kr.
185/55R15 V Roadstone Winspike 86T – nagladekk – 59.960 kr.
Hjólbarðaþjónusta N1
15 R 185/55 Leao Winter Defender Grip 86T TL – míkróskorin, negld – verð 63.960 kr.
15 R 185/55 Cooper WM SA2+ 86T – óneglaneg vetrardekk – verð 59.960 kr.
Max 1
NOKIAN NORDMAN RS2 – vetrardekk – verð 59.960 kr.
NOKIAN HAKKAPELIITTA R5 – harðkorna vetrardekk – verð 103.000 kr.
Nesdekk
NORDEXX WinterSafe 82H – óneglanleg vetrardekk – verð 51.960 kr.
Pirelli CinturatoWintr 82T – ónegld vetrardekk – verð 119.964 kr.
Gúmmívinnustofan
185/55R15 V Goodyear Ultra Grip 9+ 82T – óneglanleg vetrardekk – verð 95.960 kr.
185/55R15 V Roadstone Winspike 86T – negld vetrardekk – verð 59.960 kr.
Sólning
185/55R15 V Goodyear Ultra Grip 9+ 82T – óneglanleg vetrardekk – verð 95.960 kr.
185/55R15 V Roadstone Winspike 86T – negld vetrardekk – verð 59.960 kr.
Hvað er harðkornahjólbarði?
Ákveðnu magni af iðnaðardemanti er bætt í sem styrkir dekkin. Grip er einstaklega gott og endingartíminn lengri en hefðbundinna dekkja. Harðkornadekk hafa komið mjög vel út í beygju- og bremsuprófunum.
Umræður um þessa grein