Þriðjudagur, 27. maí, 2025 @ 23:59
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Bílskúrar snekkjunnar „A“ og aðrir snekkjuskúrar

Malín Brand Höf: Malín Brand
04/04/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 7 mín.
282 5
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter
Formáli skrifaður í apríl 2022:

Í fyrrasumar virtist snekkjan A elta mig. Eða var það öfugt? Nei, við vorum bara á svipuðum slóðum en ég var samt uppi á landi en snekkjan ekki. Þá varð til grein (sem er hér fyrir neðan) um bílskúrana á snekkjunni.

Ólíklegt er að þessi tiltekna „fleyta“ sigli nokkuð á næstunni því yfirvöld á Ítalíu hafa lagt hald á „A“ þar sem hún tilheyrir hinum rússneska auðkýfingi Andrei Melnichen­ko. Hann er einn þeirra sem nú sæta refsiaðgerðum ríkja Vest­ur­landa vegna inn­rás­ar Rúss­lands í Úkraínu. „A“ er því í Trieste og enginn veit hvað gerist svo.

Það var gaman að hafa þetta furðufyrirbæri fyrir augunum á Vestfjörðum í fyrra en snekkjan A er ein sú dýrasta sem til er (metin á um 77 milljarða) og var hún sérsmíðuð fyrir Rússann.

Hér er greinin, gjörið svo vel:

Þessa dagana [maí 2021] er hin mikla snekkja A, eða „Sailing Yacht A“ eins og hún heitir fullu nafni, á Vestfjörðum. Þetta er stórmerkilegt far og gaman að góna á það. Undirrituð glápti alla vega góða stund og kom svo aftur til að horfa aðeins meira.

Þá tróð sú hugsun sér að hvort ekki hlyti að vera bílskúr í slíku apparati. Rússinn Andrey Melnichenko, einn af 100 auðugustu mönnum veraldar á þessa snekkju og ferðast um heiminn, nú um Ísland, og hvernig ætli það sé? Kemur hann í land og…hjólar? Leigir bíl? Fer með strætó? Eða taka tveir jafnfljótir við eftir „volkið“?

Bílskúrar snekkjunnar „A“

Að sjálfsögðu eru bílskúrar í snekkjunni. Það er víst ekki bara einn heldur fleiri, eftir því sem greint er frá í Boat International þar sem fjallað er um hönnun þessa siglingafræðilega meistaraverks.

Bílablaðamaðurinn varð eilítið spældur þegar í ljós kom að bílskúrarnir í „A“ virðast ekki fá að njóta sín sem skyldi.

Kannist þið, lesendur góðir, ekki við þá tilfinningu sem að manni setur með svo undarlegum hætti, þegar bílskúrar eru fullir af öllu öðru en bílum og verkfærum? Játa ég að viss depurð gerir vart við sig þegar dásamlegum bílskúr hefur verið breytt í stúdíóíbúð, fylltur af rusli eða hann notaður sem geymsla. Það þykir mér hreint út sagt bæði agalegt og bagalegt.

Þetta er án efa dýrasta apparat sem siglt hefur inn Dýrafjörðinn. Mynd/Malín Brand

Nóg um það! Bílskúrarnir í „A“ geyma fínar græjur, samkvæmt greinum þeim er lesnar voru á veraldarvefnum, en græjur þær eru hraðbátar og kafbátur. Hönnuður skipsins er maður að nafni Philippe Starck. Starck gerði sér lítið fyrir, fyrst hann var nú byrjaður á þessu, og hannaði hraðbátana líka. Þ.e. þá sem eru í „bílskúrnum“. Myndir af bátunum má sjá hér, neðarlega í umfjölluninni.

Reyndar kemur fram á síðu nokkurri, sem ég vil ekki vitna í (því hún er í sorpflokki) að  bílskúrarnir séu ætlaðir fjórum bílum. En hvað um það! Enga bíla sá undirrituð þegar einhver risahólf voru opin upp á gátt á „A“ en vonandi voru sportbílarnir þarna samt.

Þó færi það seint framhjá manni á Vestfjörðum ef ofurbílar á erlendum númerum færu eftir þvottabrettum þeim er íslenskir vegir nefnast.

Í þessum „bílskúr“ er einn af hraðbátunum sem Starck hannaði þegar hann var í stuði. Ætli Starck gæti hannað bíl í stíl við „A“? Það yrði áhugaverður bíll! Mynd/Malín Brand

Ekki vera púkó: Bílskúrssnekkjur til sölu

Svona vangaveltur leiða mann oftar en ekki á ævintýralegar slóðir; svonefndar vefslóðir. Til dæmis var undirrituð komin inn á stórskemmtilega og stórhættulega síðu þar sem til sölu eru snekkjur með grundvallaratriði nokkru um borð; bílskúr.

Á síðu snekkjusölunnar, Fraser, segir m.a. [í lauslegri þýðingu undirritaðrar]:

„Fullkomið ferðafrelsi í fríinu á snekkjunni
Sjáðu þetta fyrir fyrir þér: Þú leggur snekkjunni að bryggju í Mónakó, Herkúlesarbryggjunni sjálfri, og innan örfárra mínútna ekur þú þaðan í sportbílnum þínum. Þeysir eftir hinum frægu akbrautum Monte Carlo, nú eða um blómum prýtt landslag Provence-héraðsins. Þið sem njótið þess að ferðast um heimsins höf á lúxussnekkjum en hafið minni ánægju af því að leigja annars flokks bílaleigubíl á viðkomustöðum ykkar, þá er snekkja með bílskúr lausnin!“

Já, er það svona lyfturæða sem selur bílskúrssnekkjur? Auðvitað!

„Hey þú? Já, þú sem átt Bugatti, Maserati og alla skemmtilegu bílana! Ætlarðu í alvöru að fara að leigja þér einhvern annars flokks skrjóð í næstu höfn? Dööööh! Taktu bílana með í snekkjuna! Ekki vera lumma í Monte Carlo!“

Textinn á síðu snekkjusölunnar er of skemmtilegur til að sleppa þessu:

„Kostir þess að eiga snekkju með bílskúr
Það þýðir að þú þarft aldrei að reiða þig á bílaleigur sem lána þér einhvern bíl sem er laus þá og þá stundina. Né heldur þarft þú að bíða óþolinmóður á þilfari snekkjunnar  eftir að starfsfólk bílaleigunnar drattist með bílinn til þín. Nei, þjónustufólkið þitt einfaldlega ekur bílnum úr skúrnum í snekkjunni og þú sleppur við þau leiðindi að þurfa að venjast einhverjum bíl sem þú hefur aldrei ekið áður – mögulega bílskrjóð sem er þér ekki samboðinn.“

Já já já! Snekkju- og bílskúrasalan Fraser er alveg með þetta. Og eftir að hafa horft á kynningarmyndbönd var ég alveg sannfærð: Mig vantar FLEIRI bílskúra. Það er bara þannig.

Snekkjan Exuma er einmitt til sölu á síðunni og auðvitað er í henni bílskúr en það sem meira er; henni fylgir sérhannaður fjórhjóladrifinn vatnabíll! Smellið endilega á hlekkinn til að skoða fyrirbærið. Þ.e. vatnabílinn, T/T Exuma, IVECO Terra Mare. Að mati undirritaðrar er hann forljótur en það er alltaf hægt að taka úr sér linsurnar eða setja gleraugun í vasann og þá gleymist það nú fljótt hve ljótur vatnabíllinn er.

Auðvitað er hann með bílana sína með sér

Niðurstaða er komin í málið eftir þessar vangaveltur undirritaðrar:

Hinn rússneski auðmaður, Andrey Melnichenko, er auðvitað skynsamur maður. Annars ætti hann ekki snekkju með bílskúr. Afsakið: Bílskúrum!

Þar sem hann er skynsamur maður hefur hann vit á því að aka ekki sínum fínu glæsivögnum á rammíslenskum vegum. Þannig að sennilega hef ég haft hann fyrir rangri sök og hver veit nema hann finni vegarkafla í lagi á ferðalaginu um Ísland og láti einhvern „sækja einn bílinn í skúrinn“!

Ljósmyndir tók greinarhöfundur við Ísafjörð og Þingeyri.

[Greinin birtist fyrst í maí 2021]

Fleiri öðruvísi bílskúrar og sögur af bílskúrum: 

Stórkostlegir bílskúrar

Bílskúrinn í vídeótækinu

Agnarsmár bílskúr og ögn minni bíll

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Mercedes T-Class verður frumsýndur 26. apríl

Næsta grein

10 ráð varðandi umhirðu bíla

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nissan Micra snýr aftur – rafdrifinn, með allt að 407 km. drægni og líkist forveranum frá 1990

Nissan Micra snýr aftur – rafdrifinn, með allt að 407 km. drægni og líkist forveranum frá 1990

Höf: Pétur R. Pétursson
26/05/2025
0

Nýja kynslóð Nissan Micra kemur á markað seint árs 2025 – glæsilegur rafbíll byggður á grunni Renault 5 Nissan Micra...

Þjónustudagur Toyota

Þjónustudagur Toyota

Höf: Pétur R. Pétursson
16/05/2025
0

Árlegur þjónustudagur Toyota verður á laugardag, 17. maí frá kl. 11 – 15. Valdir þjónustuaðilar taka vel á móti Toyota-...

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Höf: Jóhannes Reykdal
15/05/2025
0

Stellantis staðfestir framleiðslu á Fiat 500 tvinnbíl, byggðum á rafbílnum, í ítalskri verksmiðju Stellantis stefnir að því að hefja framleiðslu...

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Höf: Jóhannes Reykdal
13/05/2025
0

Nýr Volvo sportjeppi er fyrst og fremst hannaður fyrir kínverska markaðinn en alþjóðleg kynning er í skoðun. Volvo er að...

Næsta grein
Flogið gegnum Tesla verksmiðjuna

Flogið gegnum Tesla verksmiðjuna

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

2026 árgerð RAV4 afhjúpuð: virkilega flottur sportjeppi

27/05/2025
Álit

Peugeot E-3008 – er þriðja kynlsóðin sú besta hingað til?

26/05/2025
Bílaframleiðsla

Nissan Micra snýr aftur – rafdrifinn, með allt að 407 km. drægni og líkist forveranum frá 1990

26/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.