60 ára Volkswagen rúgbrauð
Volkswagen rúgbrauð, Samba er þessi flott bíll kallaður. Bíllinn sem um ræðir er nýlega uppgerður og mjög sjaldgæf útgáfa frá árinu 1962. Þessi Volkswagen var gerður upp í Brasilíu en þeir eru sérstakir áhugamenn um VW þar í landi.
Rúgbrauðið er með 1300cc, 4 strokka vél og beinskiptingu. Allt í góðu standi eins og segir í ástandslýsingu en bíllinn er til sölu hjá ER Classic.com. Ásett verð er um 60 þúsund dollarar.
Þetta eintak er með opnanlegu fagi á toppnum og búið að mála í þessum tvítóna skemmtilega mintugræna lit en þessi litasamsetning var einmitt vinsæl á bílnum um 1960. Að innan hefur bíllinn fengið topp yfirhalningu og er með grátóna áklæði og sæti fyrir allt að níu manns.
Bíllinn fékk þetta viðurnefni „Samba” á árum áður en ekki er vitað hvaðan það er upprunnið. Ætli megi ekki segja að Volkswagen rúgbrauð sé einn sá ástælasti í sínum flokki frá upphafi. Svolítið klunnalegir stuðarar, kanntað útlit en svona rosalega viðkunnalegur.
Það sem tekur þessa bíla alveg út fyrir sviga ef svo má segja eru allir gluggarnir. Við erum að tala um 23 glugga allan hringinn og svo opinn topp. Þetta var eitthvað sem ekki sást hjá öðrum framleiðendum á sjötta áratugnum.
Nú þegar rúgbrauðið er á sextugasta aldursári kemur VW aftur með útspil tengt arfleifðinni – en það er að sjálfsögðu splunkunýr ID BUZZ rafmagnsbíll sem kynntur verður nú í haust.
Njótið myndanna
Byggt á auglýsingu frá www.erclassic.com
Umræður um þessa grein