Forsalan er hafin á glænýjum Peugeot 208, rafdrifinn eða með bensínvél. Væntanlegur í janúar 2020.
FRELSI TIL AÐ VELJA BENSÍN EÐA RAFMAGN
Peugeot kynnir glænýjan framdrifinn Peugeot 208 sem eftir þörfum viðskiptavina geta valið annaðhvort með sparneytinni bensínvél eða alfarið rafdrifinn. Sparneytin bensínútfærslan eyðir aðeins frá 4,0l/100 km. og CO2 losun er aðeins frá 94 gr/km. og fæst bæði með beinskiptingu og með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu. Rafbílinn Peugeot e-208 er sjálfskiptur með 50 kWh rafhlöðu sem skilar drægni við kjöraðstæður allt að 340 km. skv. WLTP mælingu. Rafhlöðuna er hægt að hraðhlaða í allt að 80% hleðslu á 30 mínútum og í 100% hleðslu á 7,5 klst í heimahleðslu.
ÓMÓTSTÆÐILEG HÖNNUN OG NÆSTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Allir nýir Peugeot bílar eru með 5 ára ábyrgð og rafbíllinn að auki með 8 ára rafhlöðuábyrgð.
Hönnun nýja Peugeot 208 hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósunum sem setja sterkan svip á bílinn. Innréttingin eru í anda Peugeot i-Cockpit með nýjustu kynslóð af tækni og stafrænu 3D mælaborði þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns.
Peugeot 208 með bensínvél kostar frá 2.490.000 kr. og rafbíllinn Peugeot e-208 kostar frá 3.790.000 kr.
30 MÍNÚTNA HLEÐSLA Á PEUGEOT e-208
Peugeot e-208 er tímamótabíll í sögu Peugeot á einstaklega hagstæðu verði þar sem þú getur hlaðið á auðveldan máta heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöðvum.
Þú nærð 100% hleðslu á 7,5 klst með heimahleðslustöð eða 80% hleðslu á aðeins 30 mínútum í hraðhleðslustöð. Peugeot ábyrgist 70% hleðslugetu rafhlöðunnar í 8 ár eða 160.000 km. Þú getur á auðveldan hátt tímasett upphaf hleðslu í MyPeugeot® appinu eða skoðað áætlaðan hleðslutíma á skjá ásamt því að setja forhitarann í gang svo hann sé heitur og fínn þegar þú vilt nota hann.
FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI
Glænýr Peugeot 208 og e-208 er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumanninn við aksturinn og tryggir örugga ökuferð.
Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active city break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi öryggisbúnað í Peugeot 208.
Viðskiptavinir geta skoðað úrvalið af glænýjum Peugeot 208 á vefnum peugeotisland.is og pantað bíl á vefnum.
TRYGGÐU ÞÉR PEUGEOT 208 Í FORSÖLU STRAX Í DAG OG LÁTTU GÆÐIN HEILLA ÞIG!
Allar nánari upplýsingar má fá hjá Markaðsdeild Brimborgar. Póstur markadsdeild@brimborg.is og í síma 5157000
Smelltu hér til að kynna þér allt um Peugeot 208 & Peugeot e-208!
Umræður um þessa grein