Ford Mustang Mach-E crossover-rafbílnum seinkað til 2021 á sumum svæðum
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er með meira spennandi bílum sem átti að koma á markað á þessu ári – það gæti orðið bið á því að þetta gerist.
Samkvæmt fréttum gæti nýi rafbíllinn Mach-E verið töluvert á eftir áætlun en Ford hefur aðeins tilkynnt opinberlega um tafir á sumum mörkuðum.
Samkvæmt opinberum fréttum frá Hollandi, Frakklandi og Bretlandi – með tölvupósti Ford til pöntunarhafa – mun hinn rafknúni Mustang Mach-E crossover-bíll ekki koma til afhendingar fyrr en snemma árs 2021. Í þessum löndum hafði Ford áður lofað fyrstu afhendingu á árinu 2020. Ef bílaframleiðandinn getur staðið við afhendingar snemma árs 2021 er þetta í raun ekki slæmt miðað við kringumstæður sem tengjast heimsfaraldri COVID-19.
Halda sig enn við afhendingar á Bandaríkjamarkaði árið 2020
Enn sem komið er hafa engar opinberar fréttir borist frá Ford eða fyrirvari komið fram um að Mach-E muni seinka. Ford hefur haldið áfram að fullyrða að vírusinn hafi ekki haft áhrif á framleiðslu inna Bandaríkjanna eða afhendingu komandi rafmagns sportjeppa. Reyndar hefur Ford að sögn svarað fyrirspurnum frá ýmsum vettvangi. Þar sagði að nú séu engar bandarískar seinkanir og Mach-E muni enn koma til 2020.
Í tölvupóstunum útskýrði Ford að þeir væru að komast í fullan gang aftur og forgangsraða öryggi starfsmanna sinna. Á meðan halda þeir áfram að prófa Mach-E og gera endurbætur. Að auki ætti þetta ekki að hafa neikvæð áhrif á gæði lokaafurðarinnar.
(Heimildir: Insied eev – Mach-E Club, Mach-E Club (2), Mach-E Forum.com)
Umræður um þessa grein