Ford F-150 rafmagns pickup með allt að 480 km. drægni
- Allt að 4.5 tonna dráttargeta
Jæja, kaninn er kominn á kaf í rafmagnið. Það er ekki annað hægt að segja þegar Ford kynnir F-150 með rafhlöðu og rafmagnsmótorum. F línan hefur verið ein sú söluhæsta í Bandaríkjunum um árabil og ákvörðun Ford um að bjóða pickuppana í rafmagnsútgáfu eru hávær skilaboð um að nú séu gömlu kaggarnir að detta í rafmagnið.
Úrval gerða
F-150 bíllinn mun koma í fjögurra dyra Super Crew útgáfu með um 1700 mm. palllengd (vinsælustu útgáfu bílsins). Lightning útgáfan eins og rafmagnsgerðin er kölluð verður boðin í XLT, Lariat og Platinum ásamt einhverjum “vinnubíls” gerðum.
Tvær rafhlöðustærðir
Hægt verður að fá bílinn með minni og stærri rafhlöðueiningum. Hægt verður að fá stærri pakkann sem valkost í XLT og Lariat gerðunum en stærri pakkinn er staðalbúnaður í Platinum bílnum. Kagginn kemur með tveimur rafmótorum og fjórhjóladrifinn (annað væri það nú). Bíllinn með minni rafhlöðupakkanum er 426 hestöfl á meðan sá stærri er 563 hestöfl.
Báðir toga um 1050 Nm. Ford áætlar að hægt sé að smella bílnum með stærri rafhlöðupakkanum upp í 100 km. á klst. á um 4 sekúndum.
Minni rafhlaðan er að koma bílnum um 370 km. og með þeirri stærri um 480 km. Gæti verið að Platinum bíllinn fara ívið styttra sökum búnaðar.
Lengsti hleðslutími í gagnum AC tengt hleðslutæki er um 14-19 klst. en með öflugri heimahleðslustöð erum við að tala um 8-10 klst.
Með 150 kWst. hleðslustöð er hægt að hlaða bílinn á um 45 mínútum frá 15% upp í 80%.
Kaninn hefur meira að segja hannað bílinn þannig að þú getur lýst upp meðalheimili í þrjá daga – en það er svosem ekkert sem við hér heima þurfum á að halda – enda eigum við nóg af rafmagni. Það þarf bara að vera hægt að komast í það.
Ford F-150 Lightning getur dregið allt að fjögur og hálft tonn með stærri rafhlöðupakkanum en uppgefin dráttargeta með minni pakkanum er um þrjú og hálft tonn. Burðargeta er um tonn.
Bíllinn er byggður á nýjum grunni þar sem F-150 afturöxlinum hefur verið skipt út fyrir sjálfstæða fjöðrun. Lægsti punktur undir bílinn er um 23 sm.
Vigtar farminn
Nýr F-150 Lightning verður að sjálfsögðu stúfullur af nýjustu tækni frá Ford. Allt að 15 tommu snertiskjár, SYNC 4A samskiptakerfi, Blue Cruise hands-free búnaður sem er partur af Co-Pilot 360 kerfinu.
Pro Trailer aðstoðarkerfi sem stýrir, bremsar og hraðar sjálfkrafa þegar eftirvagn er tengdur við bílinn. Ræsing og læsing í gegnum snjallsíma.
Þyngdar og rýmisskynjun á palli sem hjálpar til við að áætla drægni miðað við hleðslu bílsins. Hægt verður að uppfæra kerfi bílsins yfir netið (eins og hægt er í hinum nýja Ford Mustang Mach E).
Verðið er áætlað frá 6.5 milljónum út úr búð í Bandaríkjunum.
Framleiðsla á að fara af stað á næsta ári í verksmiðju Ford í Rouge River.
Byggt á grein Autoblog.
Umræður um þessa grein