Flottur rafdrifinn blæjubíll frá GM fyrir fjöldann
- Var opinberaður fyrir bílasýninguna í Shanghai
- Hann er byggður á einum mest selda rafbílnum í Kína
Wuling Hongguang MINIEV er einn heitasti sölubíll rafbíla í Kína. Þessi mjög ódýri borgarsmábíll fór í sölu í fyrrasumar fyrir miklum látum og nú er blæjuútgáfa á leið til bílasýningarinnar í Shanghai sem verður opin fyrir almenning frá 21. til 28. apríl næstkomandi.
Bíllinn er afrakstur samvinnu SAIC-GM-Wuling, sem General Motors er hluti af hagsmunaaðilum, og kostar gerð MINIEV með heilu húsi sem samsvarar um 545 þúsund krónur í Kína.
Á 20 daga tímabilinu eftir frumsýninguna sína 24. júlí 2020 tilkynnti Automotive News China að Wuling hefði selt 15.000 eintök og tekið pantanir fyrir yfir 50.000 til viðbótar. Þetta er vinsælasti rafbíllinn sem sameiginlega verkefnið hefur framleitt.
Hongguang MINIEV Cabrio hugmyndabíllinn hefur fengið nokkrar sjónrænar breytingar frá fjögurra sæta bílnum sem hann er byggður á.
Ljósum að framan og aftan hefur verið skipt út fyrir tölvuleikjatengdar LED-einingar, sum opnu rýmin í stuðarunum og hurðunum hafa verið fylltir út með andstæðum litum og bíllinn er stærri og hann rúllar á stílhreinni sex-pílára felgum.
Að innan hefur skjárinn sem sýnir tækjabúnaðinn tvöfaldast á breiddina sem kemur fram fyrir aftan stýrið og alveg þangað sem snertiskjárinn væri venjulega.
Fjölvirkt stýri tekur við af látlausa tveggja arma stýri.
Vegna niðurfellanlegrar blæjunnar er ekki niðurfellanlegt aftursætið lengur til staðar og búið er að breyta Hongguang í persónulegan tveggja sæta bíl.
Venjulegur Hongguang MINIEV er knúinn af tveimur rafhlöðuvalkostum, 9,3 kWh einingu með 120 kílómetra akstursvið á rafmagninu, eða 13,9 kWh rafhlöðu sem er 170 kílómetra drægni. Hámarkshraðinn er um 100 km/klst, nóg fyrir þétta umferð um götur kínverskra borga.
Hann er líka gífurlega sætur, lítur út eins og fjöldi nútíma japanskra kei bíla, sem er líklega sterk söluvara.
Bíllinn kemur einnig í skærum litum eins og ljósbláum, gulum og bleikum litum, einnig með litríku áklæði.
Sameiginlegt fyrirtæki SAIC og GM-Wuling var stofnað árið 2002. Kínverski bílarisinn SAIC á 50,1% hlut, GM á 44% hlut og Wuling á afganginn.
Þó að bíllinn sem sýndur er á bílasýningunni í Sjanghæ verði hugmyndabíll, þá fullyrða sumar vefsíður á kínversku, eins og Autohome.com.cn að blæjubíllinn sé ætlaður til framleiðslu.
Nokkrar njósnamyndir af sýningarbílnum hafa þegar verið teknar og sýnt að hann er með blágrænan dúk í blæjunni til að vera í mótsögn við ljósbláa yfirbyggingu.
Ráðgert er að Hongguang MINIEV Cabrio verði afhjúpaður þegar bílasýningin í Shanghai verður opnuð 19. apríl.
(frétt á Autoblog – myndir frá Wuling Hongguang)
Umræður um þessa grein