Flottari en mann grunaði þessi litli rafmagnsbíll
Hann er flottur, vel búinn og gæti hæglega í augum sumra litið út eins og uppgerð Honda Civic árgerð 1972. Við erum að tala um Honda E Advance, nýja súper smábílinn frá Honda.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18afcb420d3320a3cdf370_1-honda-e-2020-uk-fd-hero-front.jpg)
Honda hefur aldrei farið neitt sérstaklega troðnar slóðir og bílar þeirra hafa ávallt vakið athygli og þeim hafa fylgt gnótt smáatriða sem setja punktinn yfir i-ið í hönnun og tækni.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18afd46845d472415b30e9_2-honda-e-2020-uk-fd-hero-rear.jpg)
Þessi nýi bíll er engin undantekning. En áður en lengra er haldið munu menn örugglega spyrja – hvað drífur hann langt? Og svarið er rétt rúmir 200 kílómetrar. Já, það er ansi lítið en er það ekki nóg fyrir svona lítinn bíl sem hugsaður er aðallega fyrir borgarakstur? – og eins og einhver sagði, með fallegri stúlkum á ballinu!
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18afe02750d2ba943af489_4-honda-e-2020-uk-fd-front-badge.jpg)
Enda er bílinn lítill, 3.9 metrar að lengd, 35.5 kWh rafhlöðu og vegur um 1514 kílógrömm.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18afe8420d33636dcdf3fb_5-honda-e-2020-uk-fd-front-lights.jpg)
Þess vegna mun taka örstuttan tíma að hlaða þennan bíl. Hægt er að hlaða bílinn í hraðhleðslu upp í 80% á um 20-30 mínutum og ef þú ert heima við og vilt hafa bílinn tilbúinn seinnipartinn í búðina eða ræktina tekur ekki nema fjóra til fimm klukkutíma að hlaða hann tóman í vegghleðslu heima.
Mótorinn í Honda E er staðsettur á milli afturhjólanna. Grunngerð bílsins er með 134 hestafla rafmótor og Advance gerðin með 151 hestafla rafmótor. Hann togar vel eða um 314 nm og er um 9 sekúndur í 100 kílómetra hraða – það er ekki neitt smá fyrir svona lítinn bíl.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18aff1941b8f801e53a1e4_6-honda-e-2020-uk-fd-wing-mirror-camera.jpg)
Ég man að Honda Civic árgerð 1984 fór á 7.4 sekúndum í 100 kílómetra hraða og það þótti 17 ára gömlum ökumanni með glænýtt ökuskírteini æði á þeim tíma.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18affa9c472b0835262ae1_14-honda-e-2020-uk-fd-infotainment.jpg)
Snilldin við þennan litla fák segja menn að sé hversu breiður hann sé eða 2530mm á breiddina – hann er til dæmis 10 sentimetrum hærri en Mini og þyngdarpunkturinn er sérstaklega lágur sem gerir bílinn mjög stöðugan í akstri. Þú situr hátt og sjónlínan er þægileg um framrúðuna.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18b002740a0c126e94c8ed_17-honda-e-2020-uk-fd-rear-seats.jpg)
Og, já hann er ekki með hliðarspegla heldur myndavélar, fullkomnu skjákerfi og 12 tommu skjá sem er laufléttur snertiskjár með notendaviðmóti sem á sér ekki hliðstæðu.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/5f18b0086845d447c15b3101_25-honda-e-2020-uk-fd-static.jpg)
Svo talar þú við Honduna – reyndar bara með lágstemmdum og rólegum rómi. Okay Honda…. – við reiknum með að kaupendur bílsins þurfi ef til vill nokkra daga til að setja sig í rétta gírinn og læra á kerfið.
Byggt á grein frá Autocar.co.uk
Umræður um þessa grein