- Frá og með 1. júlí mun Toyota á Íslandi bjóða viðskiptavinum Toyota, Lexus og Betri notaðra Bíla vegaaðstoð í 12 mánuði.
Í dag var undirritaður samningur milli Toyota á Íslandi og Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Samningurinn felur í sér að vegaaðstoð fylgir fyrir umráðamenn sem keyra um á nýjum bíl sem fluttur er inn af Toyota á Íslandi eða notuðum bíl sem seldur er undir vörumerkjum Betri notaðra bíla.
Þetta á ekki við um bílaleigur, nema þá KINTO bílaleiguna.
- Vegaaðstoðin felur meðal annars í sér:
- Aðstoð ef bíll verður straum- eða bensínlaus
- Aðstoð við dekkjaskipti ef dekk springur
- Flutning á verkstæði ef bíll bilar
- Flutning rafmagnsbíls heim eða á næstu hleðslustöð ef rafmagnið klárast
Einnig fylgir FÍB aðild í 12 mánuði fyrir umráðamann bifreiðar, honum að kostnaðarlausu. Hægt er að finna upplýsingar um FÍB aðild hér.
“Okkur þykir mikill fengur að þessu samstarfi við FÍB sem við sjáum sem enn eina viðbótina við öfluga þjónustu við viðskiptavini okkar. Við viljum ekki aðeins selja góða vöru heldur viljum við einnig að viðskiptavinurinn eigi greiðan aðgang að góðri þjónustu. Samstarfið við FÍB gerir okkur kleift að ganga enn lengra í þá átt” segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi.
FÍB fagnar samstarfi við Toyota á Íslandi sem hefur verið leiðandi fyrirtæki í bílgreininni í áraraðir . Tilgangur FÍB er að efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og gæta hagsmuna bíleigenda.
Félagar í FÍB eru nú um 19.000 og samstarfið við Toyota mun efla og styrkja félagið til að uppfylla kröfur vegfarenda um þjónustu og öryggi” segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bífreiðaeigenda.
Söluaðilar Toyota, Lexus og BNB veita nánari upplýsingar um Vegaaðstoð Toyota, Lexus og BNB.
(fréttatilkynning frá Toyota)
Umræður um þessa grein