Er markaðsdeild Subaru farin í hundana?
Ekki vissi ég hvaðan á mig stóð veðrið þegar það nýjasta frá Subaru blasti við á tölvuskjánum áðan. Hundar út um allt í auglýsingum og ekkert fólk! Sannast sagna botna ég ekki í þessu en kannski er þetta hrikalega góð markaðssetning…
Þær drituðust inn allar þrjár en sem betur fer er hver þeirra bara 15 sekúndur. Yfirskriftin er „Subaru Dog Tested“ og kannski aðrir kveiki betur en undirrituð!
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein