Enn þrengt að umferðinni innan Reykjavíkur
Hámarkshraði lækkaður um alla borgina á næsta ári
Ökumenn hafa fundið fyrir því að undanförnu að umferðin gengur stundum hægt innan Reykjavíkur, og á komandi ári mun þetta verða enn sýnilegra því hámarkshraði verður lækkaður um alla borgina, í 30 eða 40 kílómetra á klukkustund á götum þar sem hámarkshraði var áður 50 kílómetrar á klukkustund.
Samkvæmt frétt á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að breytingarnar eru liður í innleiðingu á hámarkshraðaáætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í apríl 2021.
Með þessum áföngum verður lokið flestum breytingum innan íbúðahverfa og tengibrauta sem skera sundur íbúðabyggðir.
Búist er við því að það taki stóran hluta ársins 2023 að koma þessu til framkvæmda því breytingin er umfangsmikil.
Lækkun hámarkshraða tekur ekki gildi fyrr en ný skilti eru komin upp.
Til viðbótar verða hámarkshraðamerkingar málaðar í götur um leið og veður leyfir.
Hraði ekki lækkaður á stofnbrautum og götum sem eru í umsjá Vegagerðarinnar
Eftir standa meðal annars breytingar á Suðurlandsbraut, Höfðabakka/Gullinbrú og stóru iðnaðarhverfunum í borginni.
Áætlunin nær ekki til hámarkshraða á vegum annarra veghaldara, það er Vegagerðarinnar og Faxaflóahafna.
Vegagerðin fer með veghald í þjóðvega í þéttbýli
Dæmi um þjóðvegi í borginni eru Sæbraut, Kringlumýrarbraut, Miklabraut, Hringbraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut.
Gert til að bæta umferðaröryggi
Samkvæmt vef Reykjavíkurborgar er lækkun hámarkshraða fyrst og fremst með öryggi í huga:
Markmið hámarkshraðaáætlunarinnar er að stuðla að bættu umferðaröryggi í Reykjavík til að koma í veg fyrir alvarleg slys á fólki í umferðinni.
Nauðsynlegt er að draga úr umferðarhraða til að ná því.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti eftirfarandi breytingar á fundi sínum þann 14. desember og það er hægt að skoða fréttina á vef borgarinnar og skoða göturnar sem í hlut eiga og tilvonandi hámarkshraða í þeim með því að smella á tenglinn hér.
Umræður um þessa grein