Enn einn crossover sportjeppi frá VW
- Þriðji smájeppinn er á leiðinni frá VW. Hann er frumsýndur núna í Suður-Ameríku og mun koma til Evrópu eftir rúmt ár að sögn danska bílablaðsins Motor, sem gefið er út af samtökum bifreiðaeigenda í Danmörku. En af hverju í ósköpunum er VW að koma með þrjá litla sportjeppa í sömu stærð?
Greinilegt er að VW hefur ekki fengið nóg af crossover-sportjeppum. Þegar er VW með T-Cross og T-Roc, og nú bæta þeir þeim þriðja við!
Bílnum er nú hleypt af stokkunum í Suður-Ameríku undir nafninu Nivus, og þó að hann hafi verið þróaður í Brasilíu og upphaflega verið smíðaður þar, þá mun þessi sportjeppi einnig verða til sölu í Evrópu að því að fram kemur í fréttinni í Motor.
Þetta mun gerast seinni hluta ársins 2021, þegar bílarnir rúlla frá Volkswagen-verksmiðju einhvers staðar í Evrópu.
Eins og T-Roc er Nivus byggður á grunni Golf – MQB, hann er fjórum cm lengri og er með hjólhaf sem er þremur cm styttra.
Þannig er Nivus raunverulega svipaður að stærð og bæði T-Roc og T-Cross.
Nivus er með eins konar copupé sportjeppahönnun, en það er T-Roc að hluta með líka, svo það er óljóst hver tilgangur Nivus er. Það keumr fram í Motor að danski innflytjandinn ekki heyrt neitt um hvernig bíllinn er verðlagður miðað við T-Cross og T-Roc.
Núna er það líka spennandi að fylgjast með þvi hvort þessi nýi sportjeppi frá VW bætist við framboðið hjá Heklu á næsta ári, og þá á hvaða verði ef af verður.
Vissulega virðist það þó sem svo að bíllinn muni ekki eiga að heita Nivus í Evrópu, en hvað nafnið verður er ekki vitað í dag.
Umræður um þessa grein