Elvis, Elias og fallegi bíllinn
Elvis Presley átti það til að tjá vináttu og þakklæti með því að gefa fólki bíla. Ekki blóm heldur bíla. Það er fallegt og sennilega ekki mjög algengt. Í það minnsta hefur maður ekki reynslu af slíku sjálfur. Elvis gaf lækninum sínum m.a. Stutz Blackhawk árgerð 1971 og Mercedes-Benz.

Elias Ghanem (1939-2001) fluttist frá Palestínu til Bandaríkjanna árið 1963. Hann hlaut styrk til læknanáms við Duke University í Norður Karólínu. Árið 1971 fluttist Elias til Las Vegas og þar byrjaði áhugavert ævintýri. Ævintýri sem margar stórstjörnur blönduðust inn í og þar á meðal sjálfur Elvis Presley.
Með þeim tókst vinátta en sem fyrr segir var Elvis líka skjólstæðingur þessa læknis. Ekki leið á löngu þar til Elias varð þekktur sem „læknir fræga fólksins“ og í þrjátíu ár fór nokkuð vel um karlinn í Las Vegas þar sem hann sinnti sínu fólki. Tyson, Tom Jones, Michael Jackson, Liberace og Bill Cosby voru á meðal þeirra sem hann sinnti.
Bjó í bílnum fyrst í stað
Bílar koma nokkuð við sögu þegar rýnt er í feril læknisins en þegar hann kom til Bandaríkjanna var hann alveg staurblankur. Hann hafði jú hlotið námsstyrkinn en annars var aleigan 90 dollarar sem hann geymdi kuðlaða saman í buxnavasanum.
Einhvern veginn tókst honum þó að öngla saman peningum til að kaupa bíl og ekki gat hann bæði leigt sér herbergi og rekið bíl þannig að hann bjó víst um skeið í bílnum. Hann sagðist hafa valið bílinn því þá ætti hann möguleika á að fara á stefnumót.
Hvort það sé satt eður ei þá voru hraðskreiðir bílar og fallegar konur það sem hann kunni best að meta í lífinu, að því er fram kemur í umfjöllun um Elias á nokkrum stöðum, t.d. hér.

Eftir að Elias kynntist Elvis varð auðvelt að njóta þessa lystisemda lífsins því lækninn skorti ekki aur eftir það. Hann var margmilljóner þegar hann dó árið 2001: Átti þotur, glæsihýsi, veitingastaði, bílaflota og ýmislegt sem kostar sitt.

Margt þótti torkennilegt í kringum þennan mann og var hann undir eftirliti alríkislögreglunnar eftir andlát Elvis Presley. Þótti bókhald læknisins eitthvað undarlegt rétt eins og þau lyf sem hann ávísaði í stórum stíl og fólk hrökk upp af standinum allt í kringum hann.

Aldrei var hann ákærður og þó margt hafi þótt grunsamlegt við Dr. Elias Ghanem er ekki annað hægt að segja en hann hafi komið ár sinni vel fyrir borð. Hann lifði eins og kóngur en dó úr krabbameini árið 2001, þá 62 ára gamall.
Hvað með bílinn?
Jú, þetta var löng saga eða langur inngangur. Kjarni málsins er sá að einn þeirra bíla sem Elvis gaf lækninum er nú á uppboði. Bíllinn sem um ræðir er Stutz Blackhawk árgerð 1971. Pappírar fylgja bílnum sem sýna að þetta er víst bíllinn sem doktorinn fékk frá Elvis.

Reyndar keypti Elvis þrjá ef ekki fjóra bíla af þessari gerð en þetta er fyrsti Blackhawk-inn sem var seldur og hann eignaðist Elvis 9. október 1970.


Í mælaborði bílsins er plata sem eftirfarandi stendur á: „Elias Ghanem/A True Friend/Elvis Presley“.

Ekki virðist Elias hafa ekið bílnum mikið því að mælirinn segir 31.856 mílur. Í þessum tiltekna bíl er margt voðalega fínt og spes.

Vínskápur, minkafeldur, 24 karata gullskreytingar og ég veit ekki hvað fleira er í bílnum. Jú, það er 7.5 lítra Pontiac V8 vél en í raun fer ákaflega lítið fyrir tæknilegum upplýsingum á síðu uppboðsins. Hér er það helsta en annars segja myndirnar sitt.



Myndir af bílnum eru allar af vef uppboðshaldarans, Mecum Auctions




Tengt efni:
Elvis keypti 32 bíla og gaf þá sama dag
Furðuveröld Jays Ohrberg
Eini bíllinn sem Marilyn Monroe átti með réttu
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein