Þetta dómsdagsskrapatól er sagt hafa farið 2 milljónir kílómetra. Hvílík ruslahrúga á hjólum, ef hjól skyldi kalla! Hvað sem gengið hefur á þá lítur þessi Mazda 323 ´91 út fyrir að hafa lagt að baki 20 milljónir kílómetra, orðið fyrir loftsteinadrífu, eldgosi og sogast inn í skýstrók.
Eigandinn byrjar á því að særa bílinn í gang með þeim torkennilega hætti sem vill loða við særingar almennt og allt í kringum það hvernig farartækinu er komið af stað er dularfullt og hrikalegt í senn en sannarlega kynngimagnað.
Ekki kemur fram hvar þetta fararhrúgald heldur til (svo maður geti varað sig á því) en þetta virðist vera langt í burtu frá Íslandi. Og líka langt í burtu frá umferðaröryggi, bifreiðaskoðunarstöðvum og slíku.
Þessu skylt:
Ók þeim gamla milljón mílur og fékk annan Volvo
Vanbúið ökutæki hinum megin á hnettinum
Ryðhrúga á hjólum?
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein