* Akstur: 41,384 mílur
* Vél: 5,6 lítra ál V8
* Skipting: fjögurra gíra sjálfskipting
* Litur: rauður, orginal lakk.
* Vökvastýri
* ABS hemlakerfi
* Diskabremsur að framan og aftan
* Cream Beige leður innrétting
* Samlæsing
* Þjófavarnarkerfi
* Loftkæling
* Krús kontról
* Litað gler
* Rafmagn í rúðum
* Rafknúin sóllúga
* Sjálfstæð fjöðrun
* AMG álfelgur
* AM-FM-Kassettu-Stereo útvarp
* 100 watta 10 hátalara hágæða hljóðkerfi
* Hiti í sætum
* Rafmagn í stýri
* Halógen aðalljós með þurrkum
* Halógen þokuljós
* Viðhaldsbók frá degi eitt
* Óaðfinnanleg viðhaldssaga
* Einn eigandi frá upphafi
Mercedes-Benz 560 SEC frá 1989 er klassískur lúxus kúpubakur sem var hluti af Mercedes-Benz S-Class línunni.
Þessi bíll er þekktur fyrir glæsilega hönnun, öfluga vél og lúxus eiginleika.
Hér kemur úrdráttur úr sölulýsingu þessa bíls hjá RK Motors.
560 SEC er með glæsilega tímalausa hönnun sem Mercedes eru þekktir fyrir. Hann er rennilegur, breiður og liggur lágt.
Í vélarsalnum í 560 SEC er 5,6 lítra V8 vél, sem var ein stærsta vél sem til var í Mercedes-Benz línunni á sínum tíma. Vélin þykir afar aflmikil sem gerir hröðun bílsins hnökralausa enda erum við að tala um 300 hö.
560 SEC er þekktur fyrir sportlega akstursupplifun. Það er úr nægu afli að moða og þú ekur þessum bíl áreynslulaust á góðri siglingu.
Mercedes Benz 560 SEC getur náð hámarkshraða í kringum 250 km / klst.
Og áfram heldur lýsingin. Að innan erum við að tala um ein þægilegustu sæti sem finnast í sportbílum.
Sætin eru vel bólstruð, klædd hágæða leðri og innréttingin er með viðarinnleggi í hágæða klassa.
560 SEC er líka rúmgóður fyrir ökumann og farþega, sérstaklega frammí.
Þessi 560 SEC er búinn ýmsum lúxusbúnaði, þar á meðal rafmagni í sætum, rafmagni í rúðum, loftkælingu, hágæða hljómkerfi og ýmsum öryggisfídusum. Bíll þessi var í einu orði sagt „toppurinn“ árið 1989.
Bíllinn sem um ræðir er fagurrauður og með upprunalegu lakki. Þessi fjögurra manna kúpubakur var á undan sinni samtíð í hönnun og tækni.
Ef þú vilt fallegan sportbíl og elskar Mercedes er þetta bíllinn.
Aðeins einn eigandi frá upphafi og hann sérpantaði bílinn eftir sínu höfði árið 1989. Það er því einn af eftirsóknarverðum kostum þessa glæsilega bíls. Ennfremur er bíllinn aðeins ekinn um 42 þús. mílur.
Janis Joplin söng um þrá sína í Mercedes Benz. Þú þarft ekkert að syngja því þessi bíður eftir þér hjá RK Motors segir að lokum í sölulýsingunni.
Verðið er um 60 þús. dollarar eða 8.5 milljónir.
Hægt er að bjóða í gripinn hér.
Umræður um þessa grein