BYD kemur með jeppa svipaðan Land Rover Defender
Gert er ráð fyrir að þessi keppinautur Defender frá BYD fari í sölu á heimsvísu árið 2024. Aflið er sagt vera 671 hestafl
Kínverski bílaframleiðandinn BYD mun setja á markað Land Rover Defender valkost á lágu verði á næsta ári.
Harðgerður torfærubíll með 671 hestöfl, jeppinn er innra með kóðanafnið SF.
Samkvæmt breska AutoCar mun SF vera með tengitvinndrifrás með drægni sem er meira en 1200 km.
Ennfremur verður hann byggður á undirvagni með stigagrind með mismunadrifslæsingum að framan, miðju og aftan.
SF mun kosta á milli 400.000 yen og 600.000 yen (8 til 12,1 milljón ISK) í Kína eftir útfærslu. Ekki slæmt, miðað við hversu mikið afl er í boði.
Til viðmiðunar er öflugasta útgáfan af Land Rover Defender 518 hestöfl og byrjar á $107.900 (um 15,1 milljón ISK).
BYD lofar að SF verði seldur á heimsvísu.
BYD-bílar kynntir á Íslandi í næsta mánuði
Bílaframleiðandinn BYD er að byggja upp viðveru sína í Evrópu og hóf formlega sölu á bílum í Bretlandi fyrr á þessu ári, og mun sækja fram á markaði nokkrum Evrópulöndum á næstunni, þar á meðal Noregi og Íslandi, en Vatt mun byrja að kynna þessa nýju bíla frá BYD á Íslandi í apríl.
Atto 3 crossover-bíllinn er sá bíll sen BYD leggur mesta áherslu á í Evrópu.
Með drægni upp á um 400 km, er Atto 3 sannfærandi Model Y valkostur fyrir fjárhagslega meðvitaðan neytanda, segir rafbílavefurinn INSIDEEVs.
Vatt á Íslandi mun byrja á að kynna Atto 3, sem er lítill, rafknúinn sportjeppi í gæðaflokki.
En mun síðan í framhaldi kynna einnig kynna BYD Tang sjö sæta rafbíl og BYD Han, sem er sportlegur fólksbíll í lúxusflokki.
BYD sýnir líka nýja sportjeppa og ofurbíl í nýrri lúxus rafbílalínu
GUANGZHOU – en það er meira að gerast hjá kínverska rafbílaframleiðandanum BYD, þar á bæ afhjúpuðu menn á dögunum nýtt lúxusbílamerki, Yangwang, sem sýnir öflugan sportjeppa og ofurbíl sem fyrirtækið vonast til að muni laða að ríka neytendur.
Þessi stærri BYD er torfærubíll með meira lúxusviðmót Hann er kallaður U8 og mun miða á Mercedes EQG. Ólíkt SF er U8 ekki tengiltvinnbíll heldur fullur rafbíll með yfir 1.000 hö.
Á kynningu á netinu sýndi fyrirtækið U8, tengitvinn-jeppa og U9 rafmagnsofurbílinn.
“Yangwang vörumerkið mun taka forystu innan hópsins okkar við að beita háþróaðri tækni.
Við munum veita viðskiptavinum okkar hæsta stigi öryggis, frammistöðu og reynslu,” sagði Wang Chuanfu stjórnarformaður BYD á viðburðinum.
U8 er með tækni sem getur stjórnað hverju hjólanna fjögurra fyrir sig með sjálfstæðum mótorum til að auka stöðugleika og öryggi.
Ekkert opinbert verð eða útgáfudagur var tilkynnt. Fyrirtækið hafði áður sagt að Yangwang gerðir yrðu á 800.000 Yuan til 1,5 milljónir Yuan (16,4 til $30 milljónir ISK) og kæmu á markað einhvern tíma á þessu ári.
Sýningarsalir fyrir lúxusbíla verða settir upp í sex helstu kínverskum borgum, þar á meðal Peking og Shanghai.
(fréttir á vef INSIDEEVs, DRIVE og Nikkei Asia)
Umræður um þessa grein