- BYD heldur því fram að nýr Denza Z9 GT sá fljótasti af lúxus „nýorkubílum“ (NEV) til að ná 10.000 afhendingum
BYD heldur því fram að hinn slétti nýi Denza Z9 GT hafi orðið „fljótasti nýorkulúxusbíllinn“ til að ná 10.000 afhendingum. Lúxusgerðin seldist á um 52.000 dollara að meðaltali og er á leið til Evrópu við hliðina á Porsche og BMW.
Eftir að hann fór í sölu þann 20. september 2024 er nýi lúxus GT-bíllinn nú þegar búinn að ná góðu gengi.
Denza sem er úrvalsvörumerki BYD náði tímamótum og afhenti 10.000. Z9 GT bílinn sinn á sunnudaginn.
BYD heldur því fram að Denza Z9 hafi slegið met í iðnaði með því að „verða fljótasti nýorkulúxusbíllinn sem selur meira en 10.000 eintök. Nýja gerðin seldist að meðaltali á 380.000 Yuan, eða um 52.000 dollara sem samsvarar um 7,3 milljónir ISK. Hann er fáanlegur með rafknúnum (EV) og tengitvinnbúnaði (PHEV) valkostum.
Rafbílagerðin er fáanleg í Pro eða Max útfærslum, með verð frá 354.800 Yuan (48.500 dollarar) og 384.800 Yuan (52.600 dollarar).
Með þrímótor uppsetningu, er hinn rafknúni Denza Z9 GT meðnæstum 1.000 hestöfl samanlagt. E3 grunnur BYD gefur 308 hestöfl (230 kW) frá rafmótor að framan og aftan með 644 hestöflum (480 kW).
BYD afhendir 10.000. Denza Z9 GT bílinn (Mynd: BYD Denza)
Knúinn af 100 kWh BYD rafhlöðupakka, hefur lúxus rafbíllinn CLTC drægni sem er yfir 630 km. PHEV-gerðin nær allt að 1.100 km drægni.
Denza Z9 GT er 5.180 mm langur, 1.990 mm breiður og 1.500 mm á hæð, eða á stærð við Porsche Taycan Turbo GT (4.968 mm langur, 1.998 mm breiður, 1.378 mm á hæð) eða Panamera GTS (5.053 mm langur, 1.937 mm á breidd, 1.417 mm á hæð).
BYD-lúxus-rafbíll Denza-Z9
Lúxus GT er sá fyrsti sem er með 9000 snjalla stjórnklefa BYD, þróaður innanhúss með TSMC, og getur stutt allt að 11 tengda skjái.
Innanrýmið inniheldur 13,2″ ökumannsskjá, 17,3″ upplýsinga- og afþreyingarskjá og 13,2″ farþegaskjár. Það er einnig með 50 tommu auknum raunveruleika sprettiskjá í sjónlínu ökumanns (HUD).
BYD hefur þegar staðfest að Denza Z9 GT muni koma á markað í Evrópu á lægra verði en keppinautar hans í lúxus. Hann mun einnig hleypa af stokkunum fólksbifreiðaútgáfu, sem sýnd var á síðasta ári.
(vefur electrek)
Umræður um þessa grein